Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. júlí 2015 11:30
Magnús Már Einarsson
James Chester til WBA (Staðfest)
Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur keypt varnarmanninn James Chester frá Hull.

Hinn 26 ára gamli Chester skrifaði undir fjögurra ára samning við WBA.

Talið er að kaupverðið sé í kringum átta milljónir punda en mörg félög höfðu sýnt Chester áhuga.

Chester kom til Hull frá Manchester United árið 2011 en hann spilaði 171 leik á ferli sínum hjá fyrrnefnda liðinu.

„James stóð sig mjög vel hjá Hull City. Ég átti gott spjall við hann og hann er sú týpa af leikmanni sem ég kann vel við," sagði Tony Pulis stjóri WBA.
Athugasemdir
banner
banner
banner