Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 29. desember 2017 21:44
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Cardiff tapaði á síðustu stundu
Tom Clarke gerði sigurmark Preston gegn Cardiff.
Tom Clarke gerði sigurmark Preston gegn Cardiff.
Mynd: Getty Images
Cardiff tapaði þriðja leiknum í röð er Preston North End kom í heimsókn fyrr í kvöld.

Bæði lið fengu góð færi en gestirnir voru betri og verðskulduðu sigurmark Tom Clarke á lokamínútunum.

Aron Einar Gunnarsson verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla. Félagið er 8 stigum eftir toppliði Wolves sem á leik til góða og eru Hörður Björgvin Magnússon og félagar í Bristol City búnir að hrifsa 2. sætið.

Steve Morison gerði þá eina mark Millwall í sigri á QPR í neðri hluta deildarinnar.

Cardiff 0 - 1 Preston
0-1 Tom Clarke ('90)

Millwall 1 - 0 QPR
1-0 Steve Morison ('55)
Athugasemdir
banner