Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   sun 05. október 2003 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Sölvi til Barnsley.
Sölvi Geir Ottesen (Mynd: Víkingur.net)
Sölvi Geir Ottesen (Mynd: Víkingur.net)
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen leikmaður Víkinga flaug nú um helgina til Barnsley á Englandi þar sem hann mun æfa með Barnsley á næstunni. Guðjón Þórðarson þjálfari Barnsley hefur hug á að styrkja leikmannahóp sinn og vonast til að Sölvi geti komið liðinu til góðs. Með Sölva í för var Sigurður Jónsson þjálfari Víkinga. Sölvi var mikið í umræðunni hér heima síðla sumars eftir að hann slasaðist illa í leik gegn Þór er hann fékk olnboga leikmanns Þórs í andlitið en hann mun vera búinn að jafna sig á því núna. Í kjölfarið af vistinni hjá Barnsley mun Sölvi fara til Stoke City og æfa þar um tíma og að lokum fer hann til Everton.
Athugasemdir
banner
banner