Fotbolti.net
29.11.26 - 21:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Richarlison á óskalista Man Utd

Richarlison á óskalista Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Richarlison er á óskalista Man Utd í janúar samkvæmt heimildum Talksport.

Man Utd er í stórkostlegum vandræðum og situr í 19. sæti deildarinnar. Liðið hefur aðeins skorað 14 mörk í 12 leikjum.
Liðið hefur ekki unnið í tíu úrvalsdeildarleikjum í röð og hefur mistekist að skora í sex leikjum.

Benjamin Sesko hefur verið fjarverandi síðan í september og verður frá fram á næsta ár. Matheus Cunha og Joshua Zirkzee eru einu eiginlegu framherjar liðsins. Cunha hefur skorað eitt mark í 12 leikjum og Zirkzee hefur skorað eitt mark í átta leikjum.

Richarlison er ekki skráður í leikmannahóp Tottenham í deildinni þar sem hann hefur óskað eftir því að yfirgefa félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.