Rheinpark í Vaduz
Undankeppni HM
Aðstæður: 15 gráður og völlurinn fínn
Dómari: Mohammed Al-Hakim (Svíþjóð)
Áhorfendur: Áhorfendabann
Markvörðurinn skutlar sér og Rúnar skorar af öryggi, hans annað mark fyrir Ísland.
Brotið var á Rúnari Má og Ísland fær víti.
Rúnar Alex misreiknar boltann herfilega og heimamenn hafa minnkað muninn.
Fyrsta hornspyrnan sem Liechtenstein fær í leiknum og þeir skora úr henni.
Æ, æ, æ. Þetta leit ekki vel út. Boltinn svÃfur yfir Rúnar Alex Rúnarsson úr hornspyrnu og Liechtensteinar minnka muninn. 3-1 og um tÃu mÃnútur eftir. pic.twitter.com/x9bVJccas6
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) March 31, 2021
Stoðsending: Jón Dagur Þorsteinsson
Jón Dagur með aukaspyrnu, Guðlaugur Victor rís hæst í teignum og skallar inn!
MAAAAARK! Guðlaugur Victor Pálsson skorar sitt fyrsta mark fyrir Ãsland og kemur okkur à 0-3.#fyririsland pic.twitter.com/BGEPM0uywK
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 31, 2021
Hjörtur Hermannsson í rosalegu dauðafæri og hafði allan tíma heimsins! Setur boltann yfir. Þarna átti þriðja markið að koma.
Eftir tÃu mÃnútna leik à seinni hálfleik fékk varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson sannkallað dauðafæri til að koma Ãslandi à 3-0. pic.twitter.com/wRE1RnJhxa
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) March 31, 2021
Liechtenstein með skot á mark. Yanick Frick af löngu færi. Beint á Rúnar Alex sem hefur hingað til verið áhorfandi á leiknum.
Inn á með Jón Dag og ÃÂsak Bergmann sem fyrst àseinni hálfleiknum #fotboltinet
— Guðmundur ÃÂsgeirsson (@gummi_aa) March 31, 2021
Stoðsending: Arnór Ingvi Traustason
Arnór Ingvi skallar boltann á Birki sem laumar honum framhjá markverði heimamanna og í netið! Helvíti fínt að fá þetta mark.
Sjáðu fyrsta mark Ãslands à stjórnartÃð nýrra þjálfara https://t.co/xci0SxkVJ8
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) March 31, 2021
Ég á engan landsleik, en það er smá von greinilega. Bara flytja til Liechtenstein og byrja aftur à boltanum.😂
— Garðar Stefán Nikulás Sigurgeirsson (@gardarStNikulas) March 31, 2021
Armenía 3 - 2 Rúmenía
1-0 Eduard Spertsyan ('56 )
1-1 Alexandru Cicaldau ('62 )
1-2 Alexandru Cicaldau ('72 )
2-2 Varazdat Haroyan ('86 )
3-2 Tigran Barseghyan ('89 , víti)
Rautt spjald: George Puscas, Rúmenía ('78)
Birkir Már kominn með sama leikjafjölda og Raggi Sig og sama markafjölda og Jón Daði. 💨🌬ðŸƒ
— Rikki G (@RikkiGje) March 31, 2021
Það er eins og Liechtenstein hafi sent rafÃþróttaliðið sitt. 🇮🇸🚬
— Steindi Jr. (@SteindiJR) March 31, 2021
Stoðsending: Hörður Björgvin Magnússon
Þriðja landsliðsmark Birkis og annað gegn Liechtenstein!
Vinstri bakvörðurinn leggur upp á hægri bakvörðinn.
37.000 manns búa à Kópavogi / 38.000 à Liechtenstein âš½ï¸#fact #fotboltinet pic.twitter.com/Cmfae2yRq4
— Hilmar Þór Norðfjörð (@hilmartor) March 31, 2021
Þrekþjálfari Liechtenstein er Sebastian Boxleitner sem var þrekþjálfari Íslands 2016-2019.
Mér finnst frábært að Sveinn Aron fá sens en að Lars komi à viðtal og seigi að Eiður hafi ekki komið nálægt ahvörðunnni er mjög sérstakt, er hann ekki aðstoðarþjálfari😄
— Samúel Samúelsson (@SSamelsson) March 31, 2021
0:3 fyrir Ãsland, Gudjohnsen 2, JB Gudmundsson.
— Hjálmar Örn Jóhannsson (@hjammi) March 31, 2021
Ath.vert byrjunarlið! alltaf ýmsar mismunandi skoðanir og allt það
— Þórður Einarsson (@doddi_111) March 31, 2021
Sveinn Aron átt verulega erfitt uppdráttar à U21 á EM. 23% aðgerða tókust. 42% sendihlutfall(alls 6 heppnaðar) 0/3 à heppuðu drippli.35 lost balls og 34% einvÃga unnið. Varla nóg til að fá kallið. en sjáum til
Rúnar Alex Rúnarsson stendur í marki Íslands og þá er einn leikmaður sem kallaður var upp úr U21 landsliðinu í byrjunarliðinu. Það er Sveinn Aron Guðjohnsen.
Alls eru fimm breytingar á byrjunarliðinu frá tapinu gegn Armeníu.
Hægt er að skoða byrjunarlið Íslands með því að smella hérna.
"Mér finnst Arnar gera rétt í að dreifa þessu aðeins en það er líka til dæmis gott fyrir Rúnar að koma inn og fá reynslu. Hann er enn mjög góður markvörður en yngist ekki. Þetta er góður leikur fyrir hann til að koma inn í liðið," sagði Lars.
"Ég þekki Svein Aron ekki vel. Eiður (aðstoðarþjálfari) tók ekki þátt í að velja liðið. Það er mikilvægt að taka það fram svo fólk haldi ekki að hann sé í liðinu út af pabba hans. Ég sá hann í báðum U21 leikjunum en ég var mjög hrifinn af honum á æfingum. Hann leit mjög vel út og meðtók hvernig við viljum að liðið spila. Hann er góður í að klára færi, vinnusamur og harður af sér," sagði sá sænski.
Hann talaði jafnframt um það að sé gríðarlega mikilvægt að vinna þennan leik í ljósi þess að Ísland hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum.
Willum Þór Willumsson er utan hóps. Það voru leikmenn tæpir fyrir leikinn en voru á endanum leikfærir og því þarf Willum að bíta í það súra epli að vera ekki í hóp. Hér er hann að fylgjast með U21 landsliðunu.
Jon Dagur á bekk😂😂😂 #fotboltinet
— AronIngason (@AronSkuli7) March 31, 2021
Og Willum ekki à hóp. Hvaða fokking brandari er þetta eiginlega???? https://t.co/C1VTDZTd00
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) March 31, 2021
Er Hólmbert meiddur? Af hverju er Alfons Sampsted bara à starting af brýnni nauðsyn gegn Þýskalandi? Hvað hefur BB gert à þessu verkefni til að verðskulda 3 start à röð?
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) March 31, 2021
Ég er smá ringlaður hérna.
Rúnar Alex Rúnarsson stendur í marki Íslands og þá er einn leikmaður sem kallaður var upp úr U21 landsliðinu í byrjunarliðinu. Það er Sveinn Aron Guðjohnsen.
Alls eru sex breytingar á byrjunarliðinu frá tapinu gegn Armeníu.
"Það er undir okkur komið hvernig við mætum í leikinn. Hvort við ætlum að leggja niður og vorkenna sjálfum okkur eða hvort við ætlum að stíga upp. Það er kjörið tækifæri á morgun til að rífa okkur í gang og ná í góð úrslit. Þetta er undir okkur komið," sagði Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, í viðtali við Fótbolta.net.
Aron spilaði 90 mínútur gegn Armenum á sunnudag líkt og gegn Þýskalandi í síðustu viku.
"Ég er allt í lagi. Ég finn aðeins fyrir kálfanum á mér. Annars líður mér vel. Það er búið að vera mikið af hlaupum og ferðalag. KSÍ hefur reynt að gera þetta eins auðvelt fyrir okkur og möguleiki er og leyfa okkur að einbeita okkur að því að spila fótbolta. Nú er undir okkur komið að stíga upp og gera það almennilega," sagði Aron en hann segist klár í að byrja leikinn.
"Algjörlega. Auðvitað vill maður taka ábyrgð og maður fórnar sér alltaf fyrir málstaðinn. Maður er alltaf klár þegar þjálfarinn biður mann að starta."
Liechtenstein er í 181. sæti en liðið tapaði 1-0 gegn Armeníu í síðustu viku og 5-0 gegn Norður-Makedóníu um helgina. Ísland tapaði 3-0 í frægum leik gegn Liechtenstein árið 2007 og Aron segir að búið sé að minna leikmenn á þann leik.
"Eiður (Smári Guðjohnsen) talaði við okkur um þennan leik. Hann spilaði þennan leik og man eftir honum. Hann sagði einfaldlega að ef menn halda að þetta sé auðvelt þá fá menn það í grímuna og í bakið. Við þurfum að vera á tánum. Það er ekkert gefins í fótbolta og við höfum verið að sjá skrýtin og óvænt úrsit. Það geta allir unnið alla. Við þurfum að vinna þennan leik á morgun, svo einfalt er það."
Smelltu hér til að horfa á viðtalið
"Maður er búinn að vera lokaður inni síðustu þrjá mánuðina og það er gaman að hafa ástæðu til að fara út úr húsi," sagði Helgi Kolviðsson í viðtali við Fótbolta.net. Helgi var aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins 2016-2018 og eftir það þjálfaði hann landslið Liechtenstein í tvö ár.
"Það er algjört must að klára leikinn og ná í þrjú stig. Síðan koma fimm heimaleikir í haust. Það er allt opið ennþá," sagði Helgi.
Leikmannahópur Liechtenstein er að mestu skipaður leikmönnum sem spila í heimalandinu eða í neðri deildum í Sviss. Þar hefur kórónuveiran sett stórt strik í fótboltann undanfarið árið og lítið verið spilað.
"Það er ekki auðveld staða hjá Liechtenstein. Það eru margir leikmenn sem eru ekki atvinnumenn og margir leikmenn hafa ekki spilað nema 8-10 leiki í heilt ár. Það er álag fyrir þá að spila þrjá leiki á sex dögum. Þeir eru ekki með þessa breidd sem við höfum."
"Við lentum einu sinni í að spila þrjá leiki á sex dögum einu sinni og menn voru algjörlega búnir á því í þriðja leiknum. Þeir eru með reynda leikmenn inn á milli og menn sem eru með gæði og geta refsað fram á við. Þetta er ekki lið sem er hægt að vanmeta. Þetta er samt skyldusigur fyrir Ísland."
Helgi hætti með Liechtenstein í nóvember og er nú að skoða næstu skref sín á ferlinum.
"Við ræddum saman í haust og náðum ekki samkomulagi um ákveðna hluti. Við ákváðum að klára Þjóðadeildina og ég ákvað sjálfur að taka aðrar ákvarðanir. Ég var í mörgum viðræðum en svo kom þetta kórónu ævintýri og maður hefur ekki getað ferðast. Þetta eru ekki auðveldir tímar til að hitta menn og það er eiginlega vonlaust eins og staðan er."
Hér má sjá viðtalið í heild sinni.
Verstu úrslit íslenskrar fótboltasögu
Ísland tapaði 3-0 á útivelli gegn Liechtenstein í október 2007, undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar, í undankeppni EM. Oft er talað um leikinn sem þann versta í sögu íslenska landsliðsins.
Liechtenstein 3 - 0 Ísland
1-0 Mario Frick (27)
2-0 Thomas Beck (80)
2-0 Thomas Beck (82)
"Við vorum niðurlægðir og erum hrikalega daprir yfir þessu. Þetta er með ólíkindum," sagði Eyjólfur í viðtali við Sýn eftir leikinn umrædda.
Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen spiluðu þennan leik sem fram fór á Rheinpark Stadion í Vaduz, á sama leikvangi og leikurinn í kvöld fer fram. Þetta reyndist síðasti landsleikur Arnars sem leikmaður.
Ísland (4-3-3): Árni Gautur, Kristján Örn, Hermann, Ragnar, Ívar, Brynjar Björn (Ásgeir Gunnar 86), Arnar Þór, Jóhannes Karl (Ármann Smári 52), Emil, Gunnar Heiðar (Helgi 72), Eiður Smári.
Leikurinn í kvöld verður áttunda viðureign liðanna. Fjórum sinnum hefur Ísland fagnað sigri, tvisvar hafa liðin gert jafntefli og Liechtenstein hefur unnið einu sinni. Síðasta viðureignin var vináttuleikur á Laugardalsvelli í aðdraganda EM 2016 þar sem íslenska liðið vann 4-0 sigur.
Það er algjör skylda fyrir íslenska landsliðið að klára leikinn á morgun með sigri. Ég er búinn að skoða mörkin fimm sem Liechtenstein fékk á sig gegn Norður-Makedóníu, ævintýralega slakur varnarleikur hjá mótherjum morgundagsins.
Það er þrautinni þyngri að spá í líklegt byrjunarlið Íslands. Arnar Þór Viðarsson teiknaði upp sex breytingar á liðinu frá tapinu gegn Þýskalandi yfir í leikinn gegn Armeníu.
Liðið tapaði svo verðskuldað gegn Armenum þar sem frammistaðan var afskaplega slök. Ljóst er að ferska vinda þarf fyrir komandi leik. Við eigum að stýra ferðinni algjörlega gegn Liechtenstein og spurning hvort Jón Dagur Þorsteinsson, sem er nýkominn upp úr U21 landsliðinu, fái tækifærið í byrjunarliðinu?
Rúnar Alex Rúnarsson gæti fengið tækifærið í markinu. Ragnar Sigurðsson er meiddur og Kári Árnason byrjar varla þriðja leikinn í röð. Hólmar Örn Eyjólfsson er því í líklegu byrjunarliði.
Alfons Sampsted gæti notið sín í þessum leik og Hólmbert Aron Friðjónsson gæti fengið tækifærið í fremstu víglínu eftir tvo leiki liðsins án þess að það skori mark.