Arsenal horfir til Ekitike - Sancho vill fara aftur til Þýskalands - Newcastle vill Quansah
Víkingur R.
6
1
HK
Gunnar Vatnhamar '10 1-0
Danijel Dejan Djuric '30 2-0
Gunnar Vatnhamar '38 3-0
Helgi Guðjónsson '40 4-0
5-0 Birkir Valur Jónsson '69 , sjálfsmark
5-1 Brynjar Snær Pálsson '72
Nikolaj Hansen '88 6-1
13.08.2023  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Frábærar
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Gunnar Vatnhamar
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth ('45)
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason ('64)
9. Helgi Guðjónsson
11. Gísli Gottskálk Þórðarson ('64)
17. Ari Sigurpálsson ('64)
19. Danijel Dejan Djuric ('70)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson

Varamenn:
10. Pablo Punyed ('64)
12. Halldór Smári Sigurðsson ('45)
18. Birnir Snær Ingason ('64)
21. Aron Elís Þrándarson (f) ('64)
23. Nikolaj Hansen ('70)
27. Matthías Vilhjálmsson

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Þórður Ingason
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson
Markús Árni Vernharðsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Halldór Smári Sigurðsson ('59)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Logi Tómasson með þrumu skot yfir markið eftir sextándu hornspyrnu Víkings í leiknum.

Það var það síðasta sem gerðist í þessum leik.
90. mín
6-1 sigur í kvöld
90. mín
Þrjár mínútur í uppbót
88. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Erlingur Agnarsson
Niðurlægingin heldur áfram Erlingur Agnarsson með fyrirgjöf á nærsvæðið og Nikolaj var mættur eins og gammur og potaði boltanum framhjá Arnari í markinu.
83. mín
Helgi með skalla framhjá eftir horn frá Loga.
83. mín
Logi heldur áfram að vera í boltanum og skokkar nú í átt að markinu full auðveldlega og á skot sem Arnar Freyr vel ver í horn.
80. mín
Inn:Birnir Breki Burknason (HK) Út:Eiður Atli Rúnarsson (HK)
80. mín
Inn:Kristján Snær Frostason (HK) Út:Hassan Jalloh (HK)
78. mín
Stöngin Erlingur Agnarsson vippar boltanum yfir Arnar Frey en boltinn skoppar í fjærstöngina.

Aron Elís hafði ekki mikið fyrir því að senda boltann innfyrir vörn HK og Erlingur var kominn í dauðafæri.
72. mín MARK!
Brynjar Snær Pálsson (HK)
Frábært skot utan teigs sem Ingvar horfði bara á í markinu. Þvílíkur kraftur og óverjandi fyrir Ingvar í markinu.
70. mín
Inn:Marciano Aziz (HK) Út:Anton Søjberg (HK)
70. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)
69. mín SJÁLFSMARK!
Birkir Valur Jónsson (HK)
Stoðsending: Logi Tómasson
Eiður Atli í tómu tjóni í hægri bakverðinum sem endar með því að Logi Tómasson á fyrirgjöf fyrir markið. Þar er Birkir Valur óheppinn og boltinn fer í hann og í markið.
64. mín
Inn:Aron Elís Þrándarson (f) (Víkingur R.) Út:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Þreföld skipting.
64. mín
Inn:Birnir Snær Ingason (Víkingur R.) Út:Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
Þreföld skipting.
64. mín
Inn:Pablo Punyed (Víkingur R.) Út:Gísli Gottskálk Þórðarson (Víkingur R.)
Þreföld skipting.
63. mín
Gunnar Vatnhamar með skalla af stuttu færi en Arnar Freyr ver enn og aftur.
62. mín
Danijel með hörkuskot sem fer í varnarmann og síðan þarf Arnar Freyr að gera sig andskoti stóran til að ná að blaka boltanum aftur fyrir. Vel varið.
60. mín
Dauðafæri Helgi hittir ekki boltann í dauðafæri og Arnar Freyr kastar sér á boltann.

Víkingar eru komnir í allt annan gír heldur í upphafi seinni hálfleiks og þá eru HK-ingar í basli.
59. mín Gult spjald: Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.)
59. mín
Helgi með skot í þverslánna. Ari átti síðan skot sem Arnar Freyr varði vel. HK-ingar áttu í erfiðleikum með að hreinsa frá en það tókst að lokum.
57. mín
Anton Søjberg reynir að lyfta boltanum yfir Ingvar sem var kominn framarlega í markinu. Það næst hinsvegar ekki en Anton kallaði eftir því að fá aukaspyrnu en Amhed var ekki á því.

Ómar Ingi kvartar í fjórða dómaranum á sama tíma.
55. mín
Atli Þór skorar en réttilega dæmdur brotlegur. Braut á Gunnari Vatnhamar í aðdraganda marksins.
54. mín
Þetta er rosalega rólegt. Víkingarnir leyfa HK-ingum að halda boltanum mun meira heldur en í fyrri hálfleik en um leið og Víkingar vinna boltann þá fer allt á fullt og þeir reyna refsa HK-ingum.

HK-ingar hafa verið meira með boltann þessar 9 mínútur heldur en allan fyrri hálfleikinn.
48. mín
Stórbrotinn markvarsla Karl Friðleifur sem á skot af stuttu færi eftir hornspyrnu en Arnar Freyr ver stórkostlega. Ahmed dæmir síðan brot sem enginn skilur neitt í.
47. mín
Danijel á skot í Birki Val og aftur fyrir. Hornspyrna fyrir Víkinga. Ekki í fyrsta skipti.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikurinn er byrjaður.
45. mín
Inn:Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur R.) Út:Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Það á að hvíla Ekroth.
45. mín
Inn:Atli Þór Jónasson (HK) Út:Arnþór Ari Atlason (HK)
45. mín
Inn:Brynjar Snær Pálsson (HK) Út:Atli Arnarson (HK)
45. mín
Hálfleikur
Skiptingar í hálfleik Brynjar Snær Pálsson og Atli Þór Jónasson eru á leið inná hjá HK. Eins er Halldór Smári á leiðinni inná.
45. mín
Hálfleikur
Amhed flautar til hálfleiks
41. mín
Dýfufagn Djuric




40. mín MARK!
Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Logi með hornspyrnu sem Arnar Freyr slær út í teiginn, beint í fætur Helga sem á skot í gegnum pakkann og viti menn - boltinn endar í markinu.

Þetta er með ólíkindum.
39. mín
Ruglið heldur áfram HK-ingar eru bara gefandi boltann frá sér aftur og aftur og Víkingar fá hornspyrnu eftir að Arnar Freyr ver vel frá Ara Sigurpáls.
38. mín MARK!
Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Stoðsending: Logi Tómasson
Skalli og mark Hornspyrna frá Loga á nærstöngina þar sem Gunnar Vatnhamar skallar að marki og yfir Arnar Frey í markinu.

Þetta er rosalega auðvelt fyrir heimamenn.
37. mín
Þvílík einstefna Gísli með skot með vinstri í varnarmann HK og aftur fyrir.

Víkingar unnu boltann mjög auðveldlega á stórhættulegum stað.
30. mín MARK!
Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)
Stoðsending: Gísli Gottskálk Þórðarson
Sjötta mark Danijels í Bestu Eiður Atli með hræðilegt innkast beint í fæturnar á Gísla sem finnur Danijel - sem er einn og óvaldaður fyrir utan vítateig HK, hann tekur eina tvær snertingar og síðan á hann þetta líka fínasta skot í nærhornið framhjá Arnari í markinu.
28. mín
Liggur annað mark í loftinu Logi Tómasson er með fyrirgjafir frá vinstri hægri vinstri og átti nú hornspyrnu frá hægri sem Ekroth skallar að marki en er dæmdur brotlegur.
27. mín
Helgi með skot í varnarmann og aftur fyrir. Enn ein hornaspyrnan.

Hassan Jalloh missir boltann á hættulegum stað sem Helgi refsar honum með skoti en í varnarmann.
25. mín
Erfiðar 25 mínútur HK-ingar eru svona að koma sér meira og meira inn í leikinn en það er afskaplega auðvelt fyrir heimamenn að spila frá öftustu línu í gegnum pressu HK og koma sér í fínar stöður á vallarhelmingi HK.
25. mín
Ekroth með skalla af fjærstönginni eftir horn frá Loga en Arnar Freyr er vel staðsettur og grípur boltann.
24. mín
Logi með frábæra fyrirgjöf sem Danijel rétt missir af en Víkingar ná sér í enn einu hornspyrnuna.
22. mín
Sólin truflar Ingvar Eiður Atli með aðra fyrirgjöf sem Ingvar Jónsson virðist tapa sjónum á útaf sólinni og stað þess að grípa boltann þá slær hann boltann út í teiginn. Beint á Arnþór Ara sem á skalla að marki sem Ingvar ver í horn.
21. mín
Eiður Atli með fyrirgjöf frá hægri sem fer í gegnum allan pakkann. Loksins eitthvað sem gerist hjá HK á vallarhelmingi Víkings.
18. mín Gult spjald: Ahmad Faqa (HK)
Ahmed spjaldar Ahmad Fer aftan í Helga Guðjónsson við miðlínuna. Hárréttur dómur og rétt ákvörðun að lyfta spjaldinu.
17. mín
Danijel Djuric þræðir boltann inn á Helga Guðjónsson sem er alltof lengi að átta sig á því að hann fékk boltann, kominn einn innfyrir við vítapunktinn. Hann er svo lengi að átta sig á því að Arnar Freyr kemur og stekkur á boltann áður en Helgi getur athafnað sig.
14. mín
Gísli Gottskálk með skot yfir markið frá vítapunktinum. Nær ekki að stýra knettinum á markið.
10. mín MARK!
Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Stoðsending: Viktor Örlygur Andrason
Skalli og mark Víkingar voru lengi með boltann á vinstri vængnum. Héldu boltanum vel á litlu svæði áður en Viktor kom boltanum yfir á fjærstöngina þar sem Gunnar Vatnhamar var frekastur í loftinu og stangaði boltann í netið.

Ahmed dómari leiksins fær stórt hrós í aðdraganda marksins. Brotið var á Ara Sigurpálssyni við vítateigslínuna en hann leyfði Víkingum að halda áfram. Víkingar vildu aukaspyrnu en hann lyftu upp höndum og leyfði leiknum að halda áfram. Vel gert - alvöru leikskilningur.
6. mín
Aftur er Viktor Örlygur með hornspyrnu sem fer yfir allan pakkann. Furðulegt.
5. mín
Logi með skot að marki en framhjá fer boltinn. Rosalega auðvelt allt saman hjá Loga sem fékk nægan tíma til að hlaða í þetta skot.
4. mín
Viktor Örlygur með spyrnuna en yfir allan pakkann.

Ari náði þó boltanum hinum megin á vellinum en náði ekki að gera neitt að viti.
3. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er heimamanna.
1. mín
Leikur hafinn
Hamingjan er hér... Við erum byrjaðir hér í Víkinni.
Fyrir leik
Stórir leikir framundan Arnar Gunnlaugsson gerir sex breytingar á sínu liði fyrir leikinn í kvöld. Víkingar eiga stóran leik á miðvikudaginn gegn KR í undanúrslitum bikarsins og á sunnudaginn eftir viku mætir liðið Val í slag tveggja efstu liða deildarinnar.
Fyrir leik
Jónas Sig er í græjunum og leikmennirnir fara trítla inn á völlinn. Það er þétt setið Víkings megin í stúkunni. Það er verið að selja sólgleruaugu í stúkunni. Ekki veitir af.
Fyrir leik
Sölvi Geir stýrir Víking í kvöld
Fyrir leik
Það er bongó. 21 gráða. Segi og skrifa.
Fyrir leik
Ómar Ingi gerir þrjár breytingar HK gerir þrjár margar breytingar á sínu liði frá 3-1 sigri liðsins gegn Keflavík. Örvar Eggertsson og Marciano Aziz fara á bekkinn á meðan Leifur Andri Leifsson er að glíma við meiðsli og er utan hóps. Inn í byrjunarliðið koma Anton Søjberg, Sigurbergur Áki Jörundsson og Eiður Atli Rúnarsson.
Fyrir leik
Sex breytingar á liði Víkings Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings tekur út leikbann í leiknum í kvöld en hann gerir hvorki fleiri né færri en sex breytingar á liði sínu frá 3-1 sigri liðsins gegn FH í síðustu umferð.

Logi Tómasson, Erlingur Agnarsson, Gísli Gottskálk Þórðarson, Ari Sigurpálsson, Karl Friðleifur Gunnarsson og Helgi Guðjónsson koma allir inn í byrjunarliðið.

Pablo Punyed, Halldór Smári, Birnir Snær, Aron Elís, Nikolaj Hansen og Matthías Vilhjálmsson fara allir á bekkinn.
Fyrir leik
Bæði lið unnu 3-1 sigra í síðustu umferð. Víkingur unnu góðan sigur á FH á sama tíma og HK vann Keflavík í mikilvægum leik í neðri hluta deildarinnar.
Fyrir leik
Hvernig spáir þjálfari KFA leiknum? Mikael Nikulásson, þjálfari KFA og sérfræðingur í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni spáði í leiki 19.umferðar á Fótbolta.net. Hann spáði Víkingum 3-0 sigri í kvöld.

,,Víkingar bara of sterkir fyrir HK þrátt fyrir að best klæddi þjálfari deildarinnar verði uppi í stúku. Vita það að í svona leikjum mega stig ekki tapast og það gerist ekki þarna. Ómar Ingi og HK búnir að gera frábæra hluti í sumar og eru búnir að teikna upp stigin sem þarf til að stelast upp í topp sex á endanum. Þessi þrjú eru ekki á þeirri töflu."
Fyrir leik
Leifur Andri frá vegna meiðsla HK megin er Leifur Andri Leifsson með brákað rifbein og er því ekki leikfær með HK-ingum í kvöld. Það er skarð fyrir skyldi.
Fyrir leik
Eyþór farinn aftur í hinn hluta Kópavogs

HK náði að spyrna sér upp töfluna með sigri gegn Keflavík í síðasta leik, liðið er í sjöunda sæti fyrir umferðina. Eyþór Wöhler skoraði þriðja mark HK í 3-1 sigrinum gegn Keflavík en hann hefur verið kallaður til baka úr láni hjá HK og mun klára tímabilið með Breiðabliki.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Arnar í stúkunni

Víkingur trónir á toppi Bestu deildarinnar en liðið vann FH í síðustu umferð. Arnar Gunnlaugsson fékk rautt spjald í þeim leik fyrir að kalla dómarana jólasveina (mögulega helvítis jólasveina). Arnar verður því í stúkunni í kvöld.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Víkingur vann í Kórnum Viktor Örlygur Andrason og Nikolaj Hansen skoruðu mörk Víkings þegar liðin áttust við í Kórnum í maí. Víkingur vann 2-1 en það var Eyþór Wöhler sem minnkaði muninn fyrir HK í leiknum.

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Þriðja liðið

Írakinn Twana Khalid Ahmad dæmir leikinn í dag. Maður með áhugaverða sögu og hefur sýnt að hann er toppdómari. Twana kom fyrst hingað til lands sem hælisleitandi 2017 en um tíma var hann í flóttamannabúðum í Þýskalandi.

Andri Vigfússon og Þórður Arnar Árnason eru aðstoðardómarar kvöldsins. Guðmundur Páll Friðbertsson er fjórði dómari og Kristinn Jakobsson eftirlitsmaður KSÍ.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Velkomin í Hamingjuna! Heimavöllur hamingjunnar stendur undir nafni. Kvennalið Víkings varð bikarmeistari á föstudag, til hamingju með það! Þá er karlaliðið á toppi Bestu deildarinnar auk þess að vera ríkjandi bikarmeistari.

Í kvöld taka Víkingar á móti HK-ingum í 19. umferð Bestu deildarinnar.

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik

Besta-deild karla í dag
16:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
17:00 FH-ÍBV (Kaplakrikavöllur)
17:00 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
19:15 Víkingur R.-HK (Víkingsvöllur)

Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
5. Ahmad Faqa
6. Birkir Valur Jónsson
8. Arnþór Ari Atlason ('45)
9. Anton Søjberg ('70)
10. Atli Hrafn Andrason
16. Eiður Atli Rúnarsson ('80)
18. Atli Arnarson ('45)
20. Sigurbergur Áki Jörundsson
21. Ívar Örn Jónsson
23. Hassan Jalloh ('80)

Varamenn:
12. Stefán Stefánsson (m)
2. Kristján Snær Frostason ('80)
4. Leifur Andri Leifsson
7. Örvar Eggertsson
11. Marciano Aziz ('70)
14. Brynjar Snær Pálsson ('45)
19. Birnir Breki Burknason ('80)
30. Atli Þór Jónasson ('45)

Liðsstjórn:
Ómar Ingi Guðmundsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Birkir Örn Arnarsson
Ísak Jónsson Guðmann
Kári Jónasson

Gul spjöld:
Ahmad Faqa ('18)

Rauð spjöld: