Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Grindavík
Grindavík
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Grindavíkurvöllur
20 stiga hiti, logn og heiðskírt. Sterk sólin kemur í einu horninu á vellinum, beint á stúkuna.
2 - 2
Huginn
Huginn
Björn Berg Bryde 16'1 - 01 - 124' Pétur Óskarsson 1 - 232' Jaime Jornet GuijarroAlexander Veigar Þórarinsson 93'2 - 2
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Alexander bjargaði Grindavík með flautumarki

Hvað réði úrslitum?

Það hreinlega hlaut eitthvað að bresta eftir að Grindavík hafði pressað stíft á mark Hugins allan seinni hálfleikinn og að lokum náði Grindavík inn markinu sem tryggði þeim stigið. Hetjur kvöldsins eru þó Hugins menn sem áttu frábæran leik og unnu hver og einn fyrir hvorn annan í varnarleiknum og hefðu vel verðskuldað öll stigin bara fyrir þann dugnað.

Bestu leikmenn

1. Blazo Lalevic, Huginn

Fékk boltann í andlitið þegar nokkrar sekúndur voru búnar af leiknum en það virðist hafa gert honum gott því hann var frábær í vörn Hugins allan leikinn, þvílík vinnnusemi og vel tímasettar tæklingar.

2. Atli Gunnar Guðmundsson, Huginn

Hafði sannarlega nóg að gera allan leikinn og varði eins og berserkur. Átti vissulega smá sök í jöfnunarmarkinu en góðu hlutirnir voru miklu fleiri og hann varði meðal annars vítaspyrnu Andra Rúnars Bjarnasonar.

Atvikið

Flautumark Alexanders Veigars í lokin er alltaf atvikið sem menn tala um eftir þennan leik. Grindvíkingar voru ekkert sáttir í leikslok en fengu þó stig sem gæti skipt máli. Gríðarlega svekkjandi atvik fyrir gestina sem þurftu öll stigin.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta var svo mikið dauðafæri fyrir Grindavík að styrkja stöðu sína í 2. sæti deildarinnar og minnka forskot KA á toppnum enda öll hin liðin í kringum þá sem spiluðu í kvöld búin að tapa sínum leikjum. Samt fara þeir á þessu eina stigi, einu stigi lengra en hin liðin í kvöld og það gæti talist dýrmætt í lokin. Huginn hefði þurft öll stigin því liðin fyrir ofan þá voru að vinna sína leiki og því enn lengra úr fallsæti en áður.

Vondur dagur

Ásgeir Þór Ingólfsson fékk það erfiða hlutskipti að leysa stöðu Rodrigo Gomes Mateo á miðjunni og tókst það ekkert sérstaklega vel til. Mateo er meiddur og ljóst af frammistöðu Ásgeirs að dæma í kvöld að það sé betra að hann færist aftur í bakvarðarstöðuna í næsta leik.

Dómarinn - 8

Þó svo fólk í stúkunni hafi fundið dómgæslunni allt til foráttu í leiknum er ekkert út á frammistöðu Péturs Guðmundssonar að setja í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.