Fotbolti.net
@vpeirikssonValur Páll Eiríksson
Valur Páll Eiríksson
Fram
Fram
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Laugardalsvöllur
Glampandi sól og völlurinn góður. Allt eins og það á að vera.
2 - 1
Þór
Þór
Orri Gunnarsson 1'1 - 0Gunnlaugur Hlynur Birgisson 17'2 - 02 - 190' Gunnar Örvar Stefánsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

SKÝRSLAN: Góð byrjun Framara skipti sköpum

Hvað réði úrslitum?

Einbeytingarleysi Þórsara í tvígang snemma leiks gerði Frömurum kleyft að skora tvö góð mörk. Ég tek þó ekkert af þeim og þeir náðu að opna vörn Þórsara þónokkrum sinnum í fyrri hálfleik sem beittum sóknarleik og fljótum framherjum.

Bestu leikmenn

1. Indriði Áki Þorláksson (Fram)

Ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti. Var beittur fram á við og lagði upp bæði mörk Framara.

2. Gunnlaugur Hlynur Birgisson (Fram)

Stjórnaði miðjunni eins og kóngur og var góður bæði fram á við og til baka. Orri Gunnarsson á einnig heima hér og var hætti aldrei að hlaupa.

Atvikið

Mark Orra Gunnarssonar eftir 24 sekúndur mótaði þennan leik. Þórsarar höfðu byrjað leikinn og geystust upp í sókn og virtust ætla að pressa Framara hátt. Þegar dæmd var hins vegar aukaspyrna á þá innan teigs Framara virtust menn vera komnir út úr stöðum sem Framarar nýttu sér með góðri skyndisókn sem endaði með sendingu Indriða Áka út í teiginn á Orra sem lagði boltann í þaknetið.

Hvað þýða úrslitin?

Framarar komast aftur á beinu brautina eftir slakt gengi þar sem þeir voru komnir fullnálægt botnsvæðinu fyrir þeirra smekk. Þórsarar virðast hins vegar endanlega vera að kveðja toppbaráttuna með sínu fimmta tapi í röð.

Vondur dagur

Jóhann Helgi Hannesson, framherji Þórsara, náði á einhvern ótrúlegan hátt að klúðra tveimur dauðafærum á innan við mínútu í fyrri hálfleik. Þar að auki braut hann af sér 5-6 sinnum og fékk að lokum gult spjald. Leikur sem hann vill líklega gleyma í bráð.

Dómarinn - 6

Rauðu spjöldin virtust bæði vera réttir dómar og almennt séð stóð Jóhann Ingi sig svo sem ágætlega. Línan sem hann dró var samt óskýr á köflum en hallaði þó tæplega á annaðhvort liðið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.