Fotbolti.net
@baldvinkari_Baldvin Kári Magnússon
KA
KA
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Akureyrarvöllur
0 - 1
Haukar
Haukar
0 - 161' Elton Renato Livramento Barros
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur Hauka gegn KA á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Barátta Hauka. Það vissu allir hvert upplegg Hauka var í þessum leik. Sitja djúpt og beita skyndisóknum og það tókst. KA-mönnum gekk illa að skapa færi og Haukar skoruðu úr nánast eina opna færinu sem þeir fengu í leiknum.

Bestu leikmenn

1. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson

Það er í raun hægt að velja alla þrjá miðverði Hauka hérna. Allt liðið spilaði vel en miðverðirnir sérstaklega. Gunnlaugur spilaði mjög vel í miðri vörninni og var sífelt að sópa upp sóknir KA-manna.

2. Gunnar Gunnarsson

Gunnar spilaði einnig virkilega vel í vörn Haukamanna. Átti nokkrar virkilega mikilvægar tæklingar.

Atvikið

Markvarsla Terrance Dieterich frá Davíð Rúnari. á 88.mínútu leiksins náði Davíð Rúnar fínum skalla frá markteig sem Terrance varði meistaralega. Bjargaði tveimur stigum með þessari markvörslu.

Hvað þýða úrslitin?

KA-menn eru þrátt fyrir tapið ennþá í toppsæti deildarinnar. Haukar ná hinsvegar gríðarlega mikilvægum stigum í botnbaráttunni. Sitja nú í 10.sæti með 14 stig. Það er gríðarlega þéttur pakki þarna niðri og hvert stig skiptir máli.

Vondur dagur

Haukur Hilmarsson. Kom inná á 85.mínútu og var rekinn útaf á 90.mínútu. Hafði sem betur fer fyrir hann ekki áhrif á úrslitin. Sama hvað mönnum finnst um rauða spjaldið var algjör óþarfi að henda sér í tækingu í miðjum teig KA-manna.

Dómarinn - 6

Ívar Orri dæmdi þennan leik ekkert sérstaklega í dag. Hafði ekki stór áhrif á úrslit leiksins en heit yfir var dómgæslan ekki góð. Einfaldir hlutir eins og innköst að klikka.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.