Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
HK
HK
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Kórinn
Afskaplega hefðbundnar!
2 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Ágúst Freyr Hallsson 22'1 - 0Hákon Ingi Jónsson 59'2 - 02 - 170' Atli Arnarson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Flottir HK-ingar fögnuðu en Leiknismenn trylltust

Hvað réði úrslitum?

HK-ingar geta verið ánægðir með frammistöðu sína í kvöld. Liðið sýndi mikinn vilja og baráttu ásamt stórhættulegum sóknaraðgerðum. Þeim gekk vel að opna Leiknisliðið og skapa sér færi. Varnarleikur Breiðhyltinga leit illa út framan af leik og vandamál þeirra sóknarlega í að skapa sér opin færi heldur áfram.

Bestu leikmenn

1. Ágúst Freyr Hallsson - HK

Hann og Hákon bjuggu til svakalegan usla í vörn Leiknismanna. Ágúst Freyr stendur uppi með mark og stoðsendingu eftir þennan leik. Ekki amalegur vinnudagur hjá Ágústi.

2. Arnar Freyr Ólafsson - HK

Markvörður HK átti flottan leik gegn sínum fyrrum samherjum. Varði vel í fyrri hálfleiknum þegar Leiknismenn áttu stórhættulegan kafla sóknarlega. Var vel vakandi.

Atvikið

Í uppbótartíma var togað í Óttar Bjarna Guðmundsson, leikmann Leiknis, í teig HK þegar hann gerði sig líklegan í skot. Dómarinn sá ekki peysutogið og spjaldaði Óttar fyrir mótmæli. Sekúndum seinna fékk Óttar ansi umdeilt spjald þegar hann var dæmdur brotlegur. Rautt og Leiknismenn trylltust.

Hvað þýða úrslitin?

HK-ingar voru farnir að sogast í harða fallbaráttu en náðu þarna í þrjú hrikalega dýrmæt stig. Þeir fögnuðu innilega og það skiljanlega því þeir börðust fyrir þessum stigum. Þeir stöðvuðu mjög gott skrið Leiknis sem missti af dýrmætum stigum.

Vondur dagur

Miðvarðapar Leiknis, Friðjón og Óttar Bjarni, fá þennan titil. Langt er síðan varnarleikur Leiknis var jafn slakur. Halldór Kristinn Halldórsson er meiddur og Friðjón engan veginn að fylla skarð hans í kvöld. Óttar var ólíkur sjálfum sér.

Dómarinn - 3,5

Helgi Mikael Jónasson hefur dæmt mjög vel í sumar og var lítið hægt að kvarta yfir dómgæslu hans framan af leik í kvöld. Risastór mistök í lokin og hve hrikalega illa hann höndlaði allar aðstæður á lykiltímapunkti í leiknum fer vonandi í reynslubanka hans. Eftir leik þurfti vallarþulur að biðja áhorfendur um að slaka á í fúkyrðum í garð dómaratríósins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.