Fotbolti.net
@fotboltinetÞórir Steinn Valgeirsson
Þórir Steinn Valgeirsson
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Eskjuvöllur
Vindur og nokkuð svalt
2 - 2
Leiknir F.
Leiknir F.
Víkingur Pálmason 30'1 - 0Hákon Þór Sófusson 41'2 - 02 - 158' Jesus Guerrero Suarez2 - 288' Ignacio Poveda Gaona
Dómari: Tómas Orri Hreinsson

SKÝRSLAN: Stórmeistarajafntefli í kaldri Austangolunni

Hvað réði úrslitum?

Vindurinn. Köld golan niður af Eskiðifjarðarheiði hafði mikil áhrif á hvernig leikurinn spilaðist og átti þátt í öllum fjórum mörkum leiksins.

Bestu leikmenn

1. Víkingur Pálmason

Skoraði eitt og lagði upp annað. Leiknis menn áttu engin svör við aukaspyrnum hans en þær voru gríðarlega vel útfærðar og Víkingur nýtti sér vindinn vel. Víkingur var einnig frískur á kantinum í fyrri hálfleik og fyrirgjafir hans sköpuðu mikla hættu. Það að Fjarðabyggð spilaði á móti vind í seinni hálfleik olli því að minna sást til hans þegar leið á leikinn.

2. Andres Salas Trenas og Hilmar Freyr Bjartþórsson

Andres Trenas var eins og klettur í vörn Leiknis og lagði upp mikilvægt jöfnunarmark þeirra. Hilmar Freyr átti einnig mjög góðan seinni hálfleik. Hann lagði upp fyrra mark Leiknis fyrir Jesus Suarez og átti síðan sendinguna sem Andres Trenas flikkaði áfram í seinnna marki Leiknis.

Atvikið

Það var lítið um stór atvik í þessum leik. Helst ber að nefna dómarakastið þar sem að Fjarðabyggð fékk að byrja með vind í fyrri hálfleik. Fyrirliði Leiknis, Björgvin Stéfan, hafði lofað blóðugri baráttu fyrir leik en það skilaði sér svo sannarlega ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Fjarðabyggð missir bæði HK og Hauka fram úr sér í deildinni. Ef Huginn vinnur sinn leik þýðir það að Fjarðabyggð verður aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Leiknir verður áfram á botni deildarinnar nema að Huginn tapi sínum leik. Þeir fjarlægast öruggt sæti enn meira í ljósi þess að bæði HK og Haukar unnu sína leiki.

Vondur dagur

Það átti í raun enginn slæman dag og erfitt að kenna leikmönnum liðanna um mörkinn vegna þess hversu erfiðar aðstæðurnar voru.

Dómarinn - 8

Tómas Orri átti flottann leik. Það bar ekki mikið á honum, lét ekki blekkjast þegar leikmenn dýfðu sér og allar stærri ákvarðanir hans virtust réttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.