Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla 2016
Samsung völlurinn
Smá gola
Stjarnan
Stjarnan
4 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Ævar Ingi Jóhannesson 19'1 - 0Veigar Páll Gunnarsson 50'2 - 02 - 157' Hrvoje Tokic (víti)Arnar Már Björgvinsson 62'3 - 1Veigar Páll Gunnarsson 70'4 - 1
Dómari: Þóroddur Hjaltalín

SKÝRSLAN: Ekkert mál fyrir Veigar Pál

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan var í stuði í dag á meðan vængbrotnir Ólafsvíkingar virkuðu vonlitlir. Veigar Páll Gunnarsson átti frábæra innkomu og skoraði tvö mörk eftir að hafa komið inn á fyrir Hilmar Árna Halldórsson sem meiddist í fyrri hálfleiknum.

Bestu leikmenn

1. Veigar Páll Gunnarsson

Veigar gæti hafa spilað síðasta leikinn með uppeldisfélagi sínu í dag. Það var þá alvöru kveðjuleikur á heimavelli. Tvö mörk og frábær frammistaða í 4-1 sigri.

2. Guðjón Baldvinsson

Lagði upp tvö mörk og var ógnandi í þann rúma klukkutíma sem hann spilaði.

Atvikið

Á 66. mínútu gerðu Stjarnan og Víkingur sitthvora skiptinguna vegna meiðsla. Þriðja liðið gerði líka skiptingu því að Þóroddur fór meiddur af velli og Sigurður Óli Þorleifsson tók stöðu hans. Þrjár mismunandi skiptingar á sama augnablikinu.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan endar í 2. sæti Pepsi-deildarinnar sem næstbesti árangurinn í sögu félagsins. Evrópukeppni á næsta ári. Ólafsvíkingar héldu sæti sínu á magnaðan hátt þrátt fyrir að vinna ekki leik í seinni umferðinni og fá einungis fjögur stig í síðustu þrettán leikjunum.

Vondur dagur

Margir leikmenn Ólafsvíkinga hafa átt betri dag og þá sérstaklega Pontus Nordenberg. Pontus var dæmdur í bann í vikunni en mátti spila eftir áfrýjun. Hann hefði jafnvel verið betur settur í banni. Var heppinn að sleppa með rautt spjald í fyrri hálfleik. Svíinn skildi síðan oft eftir sig mikið svæði í síðari hálfleik sem Stjörnumenn nýttu sér.

Dómarinn - 7

Hefði mögulega mátt reka Pontus af velli fyrir ljóta tæklingu í fyrri hálfleik. Vítaspyrnudómurinn var réttur. Sigurður Óli kom síðan inn á eftir að Þóroddur meiddist og skilaði sínu vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.