SKÝRSLAN: Brostnir Evrópudraumar á báða bóga
Hvað réði úrslitum?
Blikar geta enn og aftur kennt sjálfum sér um að hafa ekki nýtt færin sín. Fengu sannarlega dauðafæri til að klára leikinn í seinni hálfleik en fóru ekki vel að ráði sínu.
Bestu leikmenn
1. Þórður Ingason
Átti ekki einu sinni að byrja leikinn samkvæmt upphaflegri skýrslu en var virkilega góður í markinu. Tók nokkrar mjög fínar vörslur á ögurstundu.
2. Gísli Eyjólfsson
Þrátt fyrir 3-0 tap voru Blikarnir betra lið að frátöldum síðustu 10 mínútunum eða svo. Gísli Eyjólfsson var sprækur í liði Blika.
Atvikið
Fyrsta mark Fjölnis. Hans Viktor Guðmundsson skorar með laglegum skalla og bindur enda á Evrópudrauma Breiðabliks. Markið kom algerlega gegn gangi leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir endar tímabilið í 4. sæti deildarinnar en Breiðablik í 6. sætinu. Hvorugt liðanna endar því í Evrópusæti en af mismunandi ástæðum. Blikar gerðu ekki það sem þeir þurftu til að ná Evrópusæti á meðan Fjölnismenn gerðu það sem þeir þurftu en fengu ekki þá hjálp frá öðrum liðum sem nauðsynleg var.
Vondur dagur
Arnþór Ari Atlason klúðraði dauðafæri í stöðunni 0-0 sem hefði gerbreytt leiknum og mögulega tryggt Blikum Evrópusæti. Átti þó nokkur færi í leiknum en inn vildi boltinn ekki.
Dómarinn - 6
Ágætis dómgæsla heilt yfir en átti mögulega að dæma víti þegar boltinn virtist fara í höndina á Tobias Salquist inni í teig Blikanna.



