Fotbolti.net
Daníel Geir Moritz
Daníel Geir Moritz
Pepsi-deild karla 2016
Kaplakrikavöllur
Frábærar aðstæður í október. Smá gola, úrkomulaust og grænn völlur.
FH
FH
1 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 153' Devon Már Griffin Steven Lennon (víti) 83'1 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Meistaraheppni skilar jafntefli

Hvað réði úrslitum?

FH fékk víti undir lok leiks eftir klaufaleg mistök Avni Pepa. Fékk hann boltann í höndina og Vilhjálmur Alvar dæmdi víti. Svekkjandi fyrir Eyjamenn sem virtust ætla að landa sigri.

Bestu leikmenn

1. Devon Már Griffin

Var frábær í vörn Eyjamanna í dag og skoraði gull af marki. Flottur leikur hjá þessum 19 ára Eyjamanni.

2. Sam Hewson

Var bestur í liði FH í dag.

Atvikið

Eftir að flautað var til loka fyrri hálfleiks var mikill hiti í teig Eyjamanna. Avni Pepa og Kassim voru mjög æstir og voru ásakanir á netheimum um að Kassim hefði skallað Pepa. Vilhjálmur gaf báðum gult og koðnaði hitinn niður.

Hvað þýða úrslitin?

Ekki neitt í rauninni. FH var orðið meistari og ÍBV var svo sem búið að bjarga sér frá falli. ÍBV endar í 9. sæti, því sama og liðið var í fyrir umferðina.

Vondur dagur

Atlarnir voru slakir í dag. Fóru báðir af velli eftir að hafa gert ákaflega lítið.

Dómarinn - 9

Flottur leikur hjá þessum góða dómara.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.