Fotbolti.net
Sævar Ólafsson
Sævar Ólafsson
Pepsi-deild karla 2016
Þróttarvöllur
Góðar aðstæður miðað við árstíma. Stillt og hiti 6°
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 122' Arnþór Ingi KristinssonBjörgvin Stefánsson 47'1 - 11 - 257' Ívar Örn Jónsson
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Víkingar sigruðu í kveðjuleik Halls

Hvað réði úrslitum?

Góð spilamennska Víkinga heilt yfir. Gripu leikinn og héldu tökum á honum nánast allar 90 mínúturnar

Bestu leikmenn

1. Ívar Örn Jónsson

Flottur á miðjunni í dag. Dreifði spili Víkinga vel og kórónaði frammistöðu sína með gullfallegu marki af rúmlega 25 metra færi.

2. Arnþór Ingi Kristinsson

Var beittur í dag og skilaði góðum árásargjörnum hlaupum inn í markteig Þróttar og var alltaf líklegur á meðan hann var inn á vellinum. Skoraði gott mark eftir góðan undirbúning Óttars.

Atvikið

Sigurmark Ívars Arnar var ekki af verri endanum. Fær boltann fyrir utan teig og þegar drengurinn mundar þennan vinstri fót þá getur hreinlega allt gerst. Tæknilega frábær spyrna sem söng svo fallega í netmöskvum Þróttaramarksins

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin hafa litla þýðingu aðra en að marka endalok tímabilsins. Víkingar fara í 32.stig sem er þeirra besti árangur stigalega séð en skilar aðeins 7.sæti deildarinnar. Jafnframt unnu þeir sinn fyrsta útisigur síðan 22.maí í Vestmannaeyjum

Vondur dagur

Finnur Ólafsson - var í vandræðum á miðssvæðinu í dag og skilaði litlu til liðsins

Baldvin Sturluson - Var í basli með boltann og sóknarmenn Víkinga, tekinn útaf í hálfleik.

Dómarinn - 9

Pétur Guðmundsson var með tökin allan tímann. Röggsamur og með sitt á hreinu
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.