Fotbolti.net
Orri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
Inkasso deildin 1. deild karla 2017
Vivaldivöllurinn
Fínar aðstæður smá kuldi léttur vindur og skýjað en gervigrasið er í toppklassa
Grótta
Grótta
0 - 1
Keflavík
Keflavík
0 - 160' Adam Árni Róbertsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Inkasso: Grótta í slæmum málum eftir tap á heimavelli

Hvað réði úrslitum?

Færanýting og gæði framlína liðanna , Grótta gat auðveldlega skorað í fyrri hálfleik en fór illa með færi sín . Keflvíkingar refsa einfaldlega ef þú nýtir ekki færin þín enda eitt besta lið deildarinnar

Bestu leikmenn

1. Adam Árni Róbertsson

Þessi bráðefnilegi leikmaður var allt í öllu í sóknarleik gestanna í dag fæddur árið 1999 og skoraði þetta fína mark

2. Arnar Þór Helgason

Grótta mun sakna hans þegar hann fer til Daytona í háskólaboltan . Átti góðan leik og hélt Jeppe Hansen vel niðri.

Atvikið

Átti Grótta að fá víti í fyrri hálfleik ? Stúkan og leikmenn kölluðu hátt í átt að dómaranum en hann dæmdi ekkert . Hefði hann dæmt hefði þessi leikur þróast allt öðruvísi

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík er einfaldlega að fara gera atlögu að Pepsi deildar sæti á næsta tímabili sterkur sigur í dag í leik sem þeir voru slakir í . Grótta þarf hinsvegar að fara finna leið til að sanka að sér stigum þeir sitja í neðsta sæti með einungis 5 stig og 9 umferðir búnar af mótinu

Vondur dagur

Dagur Guðjónsson hægri bakvörðurinn átti ekki góða leik var klaufskur á köflum og var stálheppin að fá ekki seinna gula og þar með rautt

Dómarinn - 7

Vel dæmt tók stórar ákvaðanir en var samkvæmur sjálfum sér
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.