SKÝRSLAN: Ósannfærandi bikarsigur FH í Árbæ
Hvað réði úrslitum?
Leikkerfisbreyting FH-inga. Heimir fór að skipta um kerfi og var undir lokin kominn með fjóra menn ansi ofarlega og það skilaði markinu undir lokin. Það benti ekkert til þess að FH myndi hafa sigur í þessum leik en Halldór Orri skoraði sitt fyrsta mark og mikilvægt var það. Fylkismenn hafa efni á því að vera mjög svekktir með þessi úrslit.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)
Hann var magnaður. Vinnslan í honum lokaði alveg á sóknarleik FH mestan part leiks og þessi leikmaður sem deyr fyrir félagið.
2. Böðvar Böðvarsson (FH)
Böddi Löpp var mikilvægur hjá FH. Átti margar góðar sendingar og var besti maður FH á vellinum.
Atvikið
Valdimar Þór Ingimundarson féll við eftir viðskipti sín við Bergsvein Ólafsson. Þegar endursýning var skoðuð virðist Bergsveinn snerta hann en Valdimar fékk hins vegar gult spjald fyrir dýfu. Fylkismenn vildu fá vítaspyrnu en fengu ekki.
Hvað þýða úrslitin?
FH-ingar eru komnir áfram í undanúrslit og ævintýri Fylkis er lokið í bikarnum þetta árið. Spilamennska FH var ekkert spes í þessum leik og menn á borð við Steven Lennon og Emil Páls voru týndir. Það vantar meira sjálfstraust í FH-liðið en það sást vel að Fylkisliðið var með blússandi sjálfstraust og breiddin í liðinu er augljóslega mikil. Það að geta geymt Andrés Má Jóhannesson og Albert Brynjar Ingason á bekknum segir ýmislegt.
Vondur dagur
Steven Lennon var týndur. Hann á það til að týnast í leiknum. Ásgeir Börkur var að loka miðjunni og má helst nefna hana líka.
Halldór Orri var ekkert sérstakur í þessum leik fram að þessu sigurmarki sem hann skoraði.
Dómarinn - 7
Leyfði leiknum að fljóta og fór lítið fyrir honum.



