SKÝRSLAN: Shamrock sá við Stjörnunni
Hvað réði úrslitum?
Síðasta korterið í fyrri hálfleik þar sem Shamrock stjórnaði leiknum og skoraði sigurmarkið. Írarnir höfðu sótt stíft í nokkrar mínútur áður en þeir skoruðu. Sóknarleikur Stjörnunnar var hugmyndasnauður í kvöld en Írarnir höfðu svör við öllum aðgerðum Garðbæinga. Stuðningsmenn Shamrock fögnuðu vel og lengi eftir leik, sáttir með úrslitin.
Bestu leikmenn
1. Ronan Finn
Fyrirliði Shamrock var öflugur á miðjunni. Sló FH út með Dundalk í fyrra og gengur vel gegn íslenskum liðum.
2. Tomer Chenciski
Var duglegur að taka bolta sem komu inn fyrir. Varði einnig vel frá Jósef í síðari hálfleiknum.
Atvikið
Stóra atvikið í leiknum er markið hjá Shaw. Mark á útivelli sem gæti reynst mjög dýrmætt fyrir Shamrock. Stjarnan þarf nú að skora að minnsta kosti tvö mörk í Írlandi til að komast áfram.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan þarf að fara til Írlands í næstu viku og skora að minnsta kosti tvö mörk til að fara áfram. Sóknarleikurinn verður að vera beittari þar. Stjarnan var að leika sinn fimmta leik í júní og liðið vann ekki einn af þeim. Mánuður sem Garðbæingar vilja gleyma.
Vondur dagur
Haraldur Björnsson kom aftur inn í lið Stjörnunnar eftir mánaðar fjarveru vegna meiðsla. Hann er væntanlega ósáttur við þátt sinn í markinu þar sem hann náði ekki að slá hornspyrnu almennilega í burtu af línunni og Shamrock skoraði. Virkaði einnig óöruggur á köflum.
Dómarinn - 7
Leysti verkefnið þokkalega. Sleppti nokkrum aukaspyrnum sem hann hefði mátt dæma en að öðru leyti lítið yfir frammistöðu hans að kvarta.



