SKÝRSLAN: Bragðdauft í Breiðholti
Hvað réði úrslitum?
Jöfnunarmark ÍR á 84. mínútu. Hilmar Þór átti mjög góða innkomu í lið ÍR og kórónaði hana með marki. ÍR-ingar hefðu getað jafnað fyrr og eins og staðan var orðin var þetta í raun tímaspursmál.
Bestu leikmenn
1. Andri Jónasson (ÍR)
Það var erfitt að velja á milli manna í dag. Ekki mikil gæði á boðstólnum og margir aðrir sem áttu hér tilkall úr liði ÍR. Fall var öflugur fram á við, Már öflugur í miðverðinum og Axel Kári góður í bæði bakverði og miðverði sem hann leysti eftir meiðsli Björns Antons.
2. Kristján Páll Jónsson (Leiknir R.)
Hægri bakvarðadagur í dag. Stóð upp úr í slöku Leiknis-liði. Kantmaðurinn leysti bakvörðinn vel en átti þó í basli með Fall á köflum. Segir e.t.v. til um gæði leiksins.
Atvikið
Klúður Modou Fall á 93. mínútu leiksins. Hann fékk sendingu einn á auðum sjó við markteigslínu en hitti boltann ekki. Magnað klúður!
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn eru jafntefliskóngar deildarinnar og halda áfram að tapa stigum úr vinningsstöðu. Hefur lítil áhrif á stöðu liðanna almennt en ÍR-ingar gætu séð eftir tveimur stigum ef þeir verða í fallbaráttu í sumar.
Vondur dagur
Leiknisliðið í heild sinni. Skoruðu mark úr horni en áttu engin færi í dag þó þeir hafi skapað sér ágætis stöður á köflum í fyrri hálfleik. Lögðust svo niður í seinni hálfleik að halda 1-0 forystu í grannaslag. Svoleiðis er ekki boðlegt í Inkasso-ástríðunni.
Dómarinn - 6
Var fínn í dag en virtist stundum ekki alveg halda línu. Engin stór atvik þó.



