Fotbolti.net
Elvar Magnússon
Elvar Magnússon
Forkeppni Evrópudeildarinnar
KR-völlur
KR
KR
0 - 0
SJK Seinajoki
SJK Seinajoki
Dómari: Zbynek Proske (Ték)

SKÝRSLAN: Bragðdauft jafntefli á Alvogen vellinum

Hvað réði úrslitum?

KR-Ingar voru mun betri aðilinn hér í kvöld og voru óheppnir að ná ekki að skora. Þeir voru virkilega þéttir til baka og fengu SJK ekki eitt gott færi í kvöld. Þessi leikur fer seint í sögubækur fyrir skemmtunargildi þar sem bæði lið lágu nokkuð til baka og fá færi litu dagsins ljós. SJK voru mjög aftarlega og reyndu að drepa tempóið í leiknum við hvert tækifæri. Markmið þeirra tókst og eru þeir eflaust sáttari með jafnteflið en KR.

Bestu leikmenn

1. Skúli Jón Friðgeirsson

Var virkilega öflugur á miðjunni hjá KR í kvöld, vann nánast öll einvígi á miðjunni.

2. Morten Beck

Var mjög sprækur og kom með margar góðar fyrirgjafir af hægri vængnum. Morten skilaði sínu hlutverki vel bæði varnarlega og sóknarlega.

Atvikið

KR-Ingar skoruðu tvö rangstöðu mörk í þessum leik. Það er hinsvegar erfitt að segja til um það hvort það hafi verið réttir dómar eða ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Einvígið er galopið fyrir leikinn í Finnlandi í næstu viku, miðað við leikinn í kvöld á KR að vinna þetta lið. Hinsvegar var Finnski kollegi minn að segja mér að SJK fái þrjá lykilmenn inní hópinn fyrir næsta leik og það muni gera mikið fyrir SJK að fá þá inn.

Vondur dagur

Tobias Thomsen fær þennan titil. Fékk algjört dauðafæri til þess að klára þennan leik en á einhvern ótrulegan hátt skallaði hann framhjá af meters færi.

Dómarinn - 8,5

Fór lítið fyrir honum, sem þýðir þá einfaldlega það að hann hafi átt ágætis leik á flautunni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.