Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild karla
Samsung völlurinn
Mjög huggulegar
Stjarnan
Stjarnan
3 - 0
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Hilmar Árni Halldórsson 33'1 - 0Hólmbert Aron Friðjónsson 75'2 - 0Ólafur Karl Finsen 77'3 - 0
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Áhorfendur: 561

SKÝRSLAN: Ólsarar ná ekki að loka flóðgáttunum

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan var talsvert betra liðið í leiknum en lengi vel var staðan 1-0 og Ólsarar fengu dauðafæri til að jafna. Það var mikill léttir í Garðabænum þegar annað markið kom!

Bestu leikmenn

1. Eyjólfur Héðinsson - Stjarnan

Kom af krafti inn í byrjunarlið Stjörnunnar og var óheppinn að ná ekki að skora í leiknum. Ógnandi og áberandi í leiknum.

2. Haraldur Björnsson - Stjarnan

Var tilbúinn og á tánum. Lengi var lítið að gera hjá honum en hann var alltaf til í að grípa inn í. Hefur ekki spilað tapleik í deildinni í sumar.

Atvikið

Það var smá stress í Stjörnumönnum þegar illa gekk að ná inn öðru markinu. Þegar það kom loks var mönnum létt. Menn vissu að Ólsarar kæmu ekki til baka úr þessu.

Hvað þýða úrslitin?

Stjörnumenn eiga enn tölfræðilega möguleika á titlinum. En Evrópusæti er raunhæfara markmið. Víkingur Ólafsvík færðist niður í fallsæti í kvöld. Liðið hefur fengið á sig 15 mörk í síðustu fjórum leikjum. Fallfnykur af því. Æsispennandi botnbarátta framundan.

Vondur dagur

Aumingja Cristian Martínez, markvörður Ólsara. Hefur verið fantaflottur í sumar en hann gerði sig sekan um hræðileg mistök þegar Hilmar Árni skoraði. Missti boltann inn. Átti að öðru leyti fínan leik en þetta voru STÓR mistök.

Dómarinn - 10

Ég man ekki eftir einu einasta atriði sem liðin voru að kvarta yfir. Þóroddur Hjaltalín var lítið áberandi í kvöld. Þannig á þetta að vera.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.