SKÝRSLAN: Allir hundfúlir með eitt stig
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikurinn var tíðindalítill en sá síðari var rosalegur og þá sérstaklega lokamínúturnar. Skagamenn voru klaufar að klára ekki leikinn eftir að hafa komist í 2-1. ÍA hafði góð tök á síðari hálfleiknum þangað til að Fjölnir jafnaði á 75. mínútu. Lokamínúturnar voru æsilegar og þar voru það Fjölnismenn sem voru klaufar að nýta ekki færin betur gegn fáliðaðri vörn Skagamanna.
Bestu leikmenn
1. Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Barðist gríðarlega vel á miðjunni allan leikinn. Fór í fjölmargar tæklingar.
2. Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Skoraði annan leikinn í röð og var mjög ógnandi í sóknarleik ÍA.
Atvikið
Fjölnismenn fengu tvö dauðafæri í sömu sókninni í viðbótartíma til að ná sigrinum en Árni Snær og varnarmenn Skagamanna náðu að bjarga á ævintýarlegan hátt. Eitthvað sem gæti orðið dýrkeypt fyrir Grafarvogsbúa þegar talið verður upp úr pokanum í haust.
Hvað þýða úrslitin?
Það var lýsandi að leikmenn beggja liða lágu svekktir á vellinum eftir lokaflaut. Jafntefli gerir lítið fyrir liðin. ÍA er nánast fallið eftir þessi úrslit og Fjölnir er í slæmum málum í 10. sætinu.
Vondur dagur
Ólafur Valur Valdimarsson, vinstri bakvörður ÍA, skoraði klaufalegt sjálfsmark og leit ekki vel út í jöfnunarmarki Fjölnis. Hins vegar var hann öflugur sóknarlega og lagði upp bæði mörk ÍA.
Dómarinn - 7.5
Höndlaði erfiðan leik ágætlega. Mikil barátta og læti.



