Fotbolti.net
Kristófer Jónsson
Kristófer Jónsson
Pepsi-deild karla
Akureyrarvöllur
Skýjað og örlítil gola
KA
KA
1 - 1
Valur
Valur
Elfar Árni Aðalsteinsson 47'1 - 01 - 162' Guðjón Pétur Lýðsson (víti)
Dómari: Sigurður Óli Þórleifsson
Áhorfendur: 670 manns
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Jafntefli í hörkuleik á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Þetta var hörkuleikur tveggja góðra liða. KA menn fengu fleiri færi í leiknum en Valsarar héldu boltanum vel. KA menn eru líklegast svekktir með úrslit dagsins en Valsarar fljúga sáttir frá Akureyri með eitt stig í vasanum.

Bestu leikmenn

1. Elfar Árni Aðalsteinsson

Vann eins og brjálæðingur allan leikinn og var síógnandi. Skoraði þar að auki gott mark og hefði hæglega getað skorað fleiri.

2. Darko Bulatovic

Átti nokkrar baneitraðar fyrirgjafir sem að ollu miklum usla inní teig Valsara. Frábær leikur hjá Svartfellingnum í dag.

Atvikið

Haukur Páll, fyrirliði Vals, þurfti að fara útaf í fyrri hálfleik þegar að þrumuskot Hallgríms Mars endaði í hausnum á honum. Ætla má að hann hafi fengið heilahristing og var þetta mikill skellur fyrir Valsara.

Hvað þýða úrslitin?

Valur sitja ennþá mjög þægilega á toppi deildarinnar og þarf ansi mikið að gerast til þess að þeir verði ekki Íslandsmeistarar. KA menn sitja hins vegar í fimmta sæti deildarinnar og geta ennþá bæði tölfræðilega fallið og náð Evrópusæti. Skrítin staða til að vera í.

Vondur dagur

Aleksandar Trninic var arfaslakur í dag. Átti erfitt með að tengja spil heimamanna og lá mikið í grasinu.

Dómarinn - 7

Sigurður Óli stóð sig fínt og hélt sömu línu allan leikinn. Leyfði leiknum að fljóta mjög vel, en stundum kannski aðeins of vel. Leikmenn komust upp með ýmislegt sem að þeir hefðu ekki komist upp með annarsstaðar. Dæmdi vítaspyrnu í seinni hálfleik sem að virtist vera réttur dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.