Fotbolti.net
Orri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
Pepsi-deild karla
Hásteinsvöllur
Góðir 12 metrar á sekúndu Heiðskírt og sólskin
ÍBV
ÍBV
2 - 1
Grindavík
Grindavík
Shahab Zahedi Tabar 1'1 - 0Shahab Zahedi Tabar 32'2 - 02 - 175' Andri Rúnar Bjarnason
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Eyjamenn komnir úr fallsæti eftir sigur á Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Eyjamenn spiluðu mjög taktæiskt í þessum leik og lágu mikð aftur og fóru þetta á baráttunni. Markið á fyrstu mínútu hafði mikil áhrif og Grindvíkingar náðu ekki að ógna almennilega fyrr en á seinasta hálftímanum færanýtinginn hefur ekki verið góð hjá þem í síðustu tveimur leikjum. Eyjamenn geta verið stoltir af baráttu sinni í dag.

Bestu leikmenn

1. Shahab Zahedi (ÍBV)

hann er svo sannarlega að rísa upp frábær gegn KR en betri hér í dag og skorar tvö mörk meira varið í hann en amrgir vilja halda.

2. Atli Arnarson (ÍBV)

Þessi gæji er einn vanmetnasti leikmaður deildarinnar. Brýtur niður sóknir og kemur boltanum vel frá sér í spili fær oft ekki það hrós sem hann á skilið.

Atvikið

Markið á fyrstu mínútu hjá ÍBV gaf þeim strax meiri trú og vilja á þessu verkefni í dag gífurlega vel skipulagðir eftir það og Grindavík náði ekki að ógna mikið.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV er komið úr fallsætinu með sterkum sigri á meðan Grindvíkingar tapa sínum öðrum leik í röð og virðast vera missa af þessu vinsæla evrópusæti sem að allir vilja fá.

Vondur dagur

Rodrigo Gomes Mateo (Grindavík) Virtist hálf óörruggur í vindinum hitti ekki alltaf boltann og var að misreikna sig í skallaboltum. Hann réð líka mjög illa við Shahab nýtti sér líka hraða sinn gegn honum og skildi hann eftir í hvert skiptu sem hann tók á rás

Dómarinn - 7,5

Stóð sig mjög vel flestar ef ekki allar ákvarðanir réttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.