SKÝRSLAN: \"Peppaðir\" FH-ingar sýndu mikinn karakter
Hvað réði úrslitum?
Sigurvilji FH eftir 30 mínútur... Þegar 30 mínútur voru búnar af leiknum vöknuðu FH-ingur eftir að hafa tekið blund fyrstu mínúturnar. Eftir að FH vaknaði var aldrei litið til baka. Jón Jónsson hefur aldrei fundið fyrir öðru eins \"peppi\".
Bestu leikmenn
1. Þórarinn Ingi Valdimarsson (FH)
Sýndi flotta takta. Skoraði líka markið mikilvæga sem kom FH í 3-2.
2. Jón Ragnar Jónsson (FH)
Hefur spilað lítið í sumar. Kemur inn í liðið í dag og er óhræddur í sínum aðgerðum. \"Skorar\" sitt annað mark í efstu deild.
Atvikið
Fyrsta mark FH. Steven Lennon tekur hornspyrnu sem Davíð Þór Viðarsson, fyrirliðinn, skallar inn af harðfylgi. Markið kveikti í FH-ingum.
Hvað þýða úrslitin?
FH er í góðum málum hvað varðar Evrópu og þeir eiga enn tölfræðilegan möguleika á titlinum. Víkingur R. er bara þremur stigum frá fallsæti.
Vondur dagur
Varnarvinna Víkinga hefði alveg mátt vera betri. Mér fannst Túfa arfaslakur og þá hreif Milos Ozegovic mig ekki á miðjunni. Ef leikurinn hefði verið flautaður af eftir 30 mínútur hefði allt FH-liðið fengið þessa nafnbót.
Dómarinn - 5,5
Höndlaði leikinn ágætlega. Fyrsta mark FH kom úr hornspyrnu og það er spurning hvort sú hornspyrna hafi átt að vera. Held að vítaspyrnudómurinn hafi verið réttur. Tæklaði leikinn heilt yfir ágætlega eins og áður segir.



