Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla
Samsung völlurinn
Smá vindur á annað markið
Stjarnan
Stjarnan
1 - 2
Valur
Valur
0 - 120' Bjarni Ólafur Eiríksson0 - 240' Guðjón Pétur Lýðsson (víti)Hilmar Árni Halldórsson (víti) 91'1 - 2
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 833
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

SKÝRSLAN: Bæði lið brosandi í leikslok í Garðabæ

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan sótti talsvert meira í leiknum og fékk fleiri færi til að skora. Vörn Vals og Anton í markinu stóðu storminn af sér auk þess sem boltinn fór tvívegis í stöngina. Valsmenn fóru ekki í margar sóknir í fyrri hálfleiknum en þeir nýttu þær vel og óhætt er að segja að Íslandsmeistararnir hafi refsað Stjörnunni fyrir að nýta ekki færin betur.

Bestu leikmenn

1. Anton Ari Einarsson (Valur)

Varði oft á tíðum mjög vel í marki Vals.

2. Eiður Aron Sigurbjörnsson (Valur)

Hefur varla stigið feilspor síðan hann kom inn í vörn Vals í byrjun sumars. Öflugur í dag.

Atvikið

Stjörnumenn voru ósáttir með vítaspyrnuna í öðru marki Vals. Eftir spil Vals kom fyrirgjöf sem Kristinn Ingi náði til en skot hans rataði ekki á markið. Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar kom á fleygiferð úr markinu og lenti í samstuð við Kristinn. Vítaspyrna var niðurstaðan en Haraldur var ekki sáttur við niðurstöðuna og sýndi takkaför í viðtali eftir leik.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn auka forskot sitt á toppnum. Engin þynnka í gangi hjá Íslandsmeisturunum. Stjarnan er áfram í 2. sætinu og með Evrópusætið tryggt eftir jafntefli KR. Bæði lið brostu því í leikslok í Garðabæ í dag.

Vondur dagur

Jóhann Laxdal átti nokkrar slakar fyrirgjafir og eina marktilraun sem fór hátt yfir. Var síðan tekinn af velli eftir klukkutíma. Hefur oft spilað betur í sumar.

Dómarinn - 7

Vítaspyrnudómarnir virkuðu báðir réttir. Stjörnumenn voru ósáttir með aukaspyrnur undir lok leiks en heilt yfir ágætis frammistaða hjá Helga.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.