Fotbolti.net
Ármann Örn Guðbjörnsson
Pepsi-deild karla
Ólafsvíkurvöllur
Blæs vel. Skýjað og völlurinn í skelfilegu ástandi
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
1 - 1
FH
FH
Þorsteinn Már Ragnarsson 25'1 - 01 - 169' Steven Lennon (víti)
Dómari: Þorvaldur Árnason

SKÝRSLAN: FH í Evrópu (Staðfest) - Ólsarar eiga séns

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru þéttir og gáfu FH ekki mörg færi. Fengu mark á sig úr vítaspyrnu en FH klikkaði einnig á þrem rosalega góðum færum sem þeir hefðu átt að nýta.

Bestu leikmenn

1. Gabrielius Zagurskas

Var magnaður í dag varnarlega. Hann Tomasz Luba og Emir áttu allir mjög góðan dag í vörninni

2. Emir Dokara

Tomasz Luba hefði líka getað fengið bónusstigi. Spiluðu vel. Björguðu liðinu nokkrum sinnum vel á síðustu stundu.

Atvikið

Þegar Þorvaldur dæmdi vítaspyrnu. Frá sjónarhorni blaðamannaskýlissins var þetta rangur dómur en ég hef heyrt frá mönnum í brekkunni að það hafi verið snerting. Víti var amk dæmt og FH-ingar náðu jafntefli

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar eru búnir að tryggja Evrópusæti eftir að KR gerði jafntefli við Fjölni. Ólsarar eru enn í fallsæti en eiga möguleika á að bjarga sér í lokaumferð ef ÍBV vinnur ekki KA.

Vondur dagur

Matija Dvornekovic.
Átti hrikalegt klúður þegar hann ákvað að senda boltann inní teig í staðinn fyrir að skjóta á markið. Ákvað svo að henda sér niður í teignum. Virkilega kjánaleg dýfa þar sem hann hafði meter á varnarmanninn og hefði getað komið með boltann fyrir markið

Dómarinn - 5

Ef þetta er hárréttur dómur þá fær hann 6,5 en ef ekki þá fær hann 3. Leit hrikalega illa út þegar hann gaf Bergsveini \"annað gula\" þegar Böddi löpp var eini sem var kominn með spjald í FH.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.