Fotbolti.net
Aron Elvar Finnsson
Aron Elvar Finnsson
Pepsi-deild karla
Akureyrarvöllur
KA
KA
2 - 1
Grindavík
Grindavík
Elfar Árni Aðalsteinsson (misnotað víti) 3'Emil Sigvardsen Lyng 38'1 - 0Hallgrímur Mar Steingrímsson 42'2 - 02 - 151' Simon Kollerup Smidt
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Áhorfendur: 640
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Andri Rúnar skoraði ekki í tapleik gegn KA

Hvað réði úrslitum?

Varnarmistök. Eins og Óli Stefán þjálfari Grindavíkur benti á í viðtali þá koma bæði mörk KA-manna eftir varnarmistök. Það var varla færi í leiknum fyrir utan mörkin.

Bestu leikmenn

1. Emil Lyng

Þetta er ótrúlega erfitt val. Emil var sívinnandi allan leikinn og skoraði fyrra mark KA-manna, ásamt því að leggja upp það seinna. Flottur leikur hjá honum.

2. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Gæti skrifað nánast það sama og hjá Emil. Mikil vinnsla í Hallgrími allan leikinn og skoraði mark. Frábær á boltanum og duglegur að reyna að búa til.

Atvikið

Ekkert sem stendur neitt rosalega upp úr en ég ætla að velja færið sem Andri Rúnar fékk á lokamínútu uppbótartímans. Slapp innfyrir vörn KA-manna og var í fínu færi en hamraði boltanum hátt yfir markið. Skrifað í skýin að hann myndi jafna markametið á lokamínútu leiksins en það gekk ekki eftir.

Hvað þýða úrslitin?

KA-menn lyftu sér upp fyrir Grindvíkinga og sitja því í 5.sætinu. Grindavík er í 6.sætinu stigi á eftir.

Vondur dagur

Andri Rúnar Bjarnason. Það gekk ekkert upp hjá Andra í dag. Þetta var bara ekki dagurinn hans. Fékk úr litlu að moða en þegar tækifærin gáfust nýtti hann þau illa.

Dómarinn - 9,5

Virkilega vel dæmt hjá Einari Inga í dag. Leikurinn fékk að fljóta vel og vítaspyrnan og gulu spjöldin voru allt hárréttir dómar. Vel gert!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.