SKÝRSLAN: Fjölnir bjargaðist en KR klúðraði Evrópusæti
Hvað réði úrslitum?
Gæði sóknarlega hjá báðum liðum.
Flott mörk á báða bóga aðalmálið hér í dag.
Flott mörk á báða bóga aðalmálið hér í dag.
Bestu leikmenn
1. Birnir Snær Ingason
Frábær leikur hjá stráknum, áræðinn og grimmur. Skoraði eitt mark og var nálægt því að skora fleiri. Lykilmaður í Fjölnisliði framtíðarinnar.
2. Ástbjörn Þórðarson
Kraftur í stráknum á hægri vængnum og kláraði færið sitt mjög yfirvegað. Grimmur og áræðinn leikmaður.
Atvikið
Hugsanlega má skoða fyrra mark Fjölnis, þ.e. þegar að dæmt er brot á Skúla Jón sem fór í boltann í tæklingu...en Þóroddur mat það að það dygði ekki til að forða aukaspyrnu. Sem gaf svo mark.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn eru öruggir með sæti sitt í PEPSI-deildinni næsta sumar eftir þennan leik en KR kemst ekki í Evrópukeppni árið 2018.
Vondur dagur
Fyrri hálfleikurinn var vondur.
Versti hálfleikur sumarsins hjá pistlahöfundi. Eiginlega allt slakt.
Seinni svo geggjuð skemmtun, svo vondur dagur fyrri hálfleiks...
Versti hálfleikur sumarsins hjá pistlahöfundi. Eiginlega allt slakt.
Seinni svo geggjuð skemmtun, svo vondur dagur fyrri hálfleiks...
Dómarinn - 9,0
Þóroddur átti virkilega fínan dag.
Hélt góðri línu, hvort sem kemur að því að flauta eða ekki, sem og því hvað hann spjaldaði og hvað ekki.
Röggsamur á nokkrum mómentum þegar smá hasar var að myndast. Vel gert.
Hélt góðri línu, hvort sem kemur að því að flauta eða ekki, sem og því hvað hann spjaldaði og hvað ekki.
Röggsamur á nokkrum mómentum þegar smá hasar var að myndast. Vel gert.



