SKÝRSLAN: Njarðvík stóð af sér storminn í fyrri hálfleik og náði stiginu
Hvað réði úrslitum?
Þetta var í raun leikur tveggja hálfleika þar sem Víkingar áttu fyrrihálfleikinn alveg skuldlaust á meðan Njarðvíkingar voru betri í þeim seinni.
Ótrúlegt samt í raun að Víkingar hafi ekki klárað leikinn í fyrri hálfleik en það er líklega það sem skilur liðin af, Njarðvíkingar stóðu af sér storminn í fyrri og mættu tilbúnari í seinni hálfleikinn.
Bestu leikmenn
1. Kwame Quee
Fær þennan titill því hann var óstöðvandi og bar af fyrstu 45 mín leiksins, var ekki jafn öflugur í seinni en það flaut allt í gegnum hann engu að síður.
2. Magnús Þór Magnússon
Var virkilega öflugur í öftustu línu Njarðvíkur
Atvikið
Rauða spjaldið sem Víkingar fengu.
Gonzalo og Brynjar Freyr eru í baráttu sem endar með að Brynjar Freyr tekur Gonzalo niður en þá tekur hann þá glórulausu ákvörðun að sparka í Brynjar Freyr þegar þeir liggja báðir og fær að launum rautt spjald.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvíkingar eru komnir með 10 stig en standa í stað í 9.sætinu, hefðu fyrir leik líklega tekið stiginu.
Víkingur Ó fer í 20 stig og uppfyrir Þór á markatölu en þessi úrslit eru vonbrigði fyrir þá.
Vondur dagur
Gonzalo Zamorano verður að fá þennan titill fyrir að láta henda sér útaf, pirraður úti Brynjar fyrir að brjóta á sér en þetta á samt ekki að sjást að sparka á eftir mönnum.
Arnar Helgi átti líka í stökustu vandræðum með Kwame Quee í fyrri hálfleik og réði lítið við hann en var allt annað að sjá til hans í seinni hálfleik.
Dómarinn - 5
Lala framistaða.
Ekki hrikaleg en ekki gallalaus heldur



