Fotbolti.net
@ActionRedÞórarinn Jónas Ásgeirsson
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Ásvellir
Gamla góða Ásvallargjólan og sólskin
Haukar
Haukar
0 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 115' Sævar Atli Magnússon 0 - 267' Sævar Atli Magnússon
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Stríðsmenn Vigfúsar sóttu þrjú stig á Ásvelli

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn mættu bara miklu grimmari til leiks og keyrðu bara yfir Hauka. Á meðan voru Haukar hreinlega andlausir og langt frá því að vera líkir sjálfum sér og því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Sævar Atli Magnússon (Leiknir R.)

Þessi 18 ára pjakkur ógnaði sífellt þegar hann fékk boltann og réðu varnarmenn Hauka lítið við hann þegar hann kom sér í einn á einn stöðu. Tvö mörk, besti maður vallarins.

2. Ernir Bjarnason (Leiknir R.)

Vann óeigingjarnt verk á miðju Leiknismanna. Mjög duglegur og vann ófáa boltana, flottur leikur.

Atvikið

Seinna mark Leiknismanna gerði eiginlega bara út um leikinn. Eftir það voru Haukamenn bara ekki líklegir til að gera eitthvað í þessum leik.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn komast upp að hlið Hauka og Þróttar með 13 stig í deildinni. Haukar sitja enn í 5.sæti en Leiknir klifrar upp í 7.sætið.

Vondur dagur

Nokkrir sem gera tilkall í Haukaliðinu. Elton Renato Livramento Barros gerði lítið sem ekkert þann tíma sem hann fékk inn á vellinum og þá átti Davíð Ingvarsson ekki sinn besta dag, snerti boltann mikið og tapaði honum oftast þegar hann tók af stað.

Dómarinn - 7,5

Solid sjö komma fimm á Ella FM. Frekar auðveldur leikur að dæma en sum gulu spjöldin voru skrýtin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.