Fotbolti.net
@wium99Ísak Máni Wíum
Ísak Máni Wíum
Inkasso deildin - 1. deild karla
Hertz völlurinn
Smá rok en þurrt, það er fyrir öllu
ÍR
ÍR
1 - 1
HK
HK
Már Viðarsson 49'1 - 01 - 197' Birkir Valur Jónsson
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson

SKÝRSLAN: Taplausir HK-menn bognuðu en brotnuðu ekki

Hvað réði úrslitum?

Erfitt að segja hvað réði úrslitum í þeeu jafntefli. Verð að segja að 7 mínútna uppbótartíminn hjá Guðmundi dómara réði úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Axel Kári Vignisson (ÍR)

Bakvörðurinn var frábær í miðverðinum í dag, fór í alla skallabolta og átti nokkrar mjög fínar tæklingar. Hefur ekki sýnt sínar bestu hliðar á þessu tímabili en það breyttist í dag.

2. Helgi Freyr Þorsteinsson (ÍR)

Helgi markmaður hefur komið gríðarlega sterkur inn í ÍR liðið síðan Patrik hvarf á braut og átti enn einn stórleikinn í dag, var mjög öruggur í teignum og varði víti.

Atvikið

Jöfnunarmarkið hjá HK sem kom á 97 mínútu leiksins er að sjálfsögðu atvik leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

HK eru enn taplausir en falla niður í annað sæti á meðan ÍR sitja sem fastast í því ellefta.

Vondur dagur

Bjarni Gunn sóknarmaður HK átti ekki góðan leik, fyrir utan að klúðra víti þá gekk ekkert upp fyrir hann og Axel og Már Viðars voru með hann í vasanum í vörninni.

Dómarinn - 3

Guðmundur Ársæll átti skelfilegan dag, hélt engri línu í brotum út á miðjum velli og að bæta við 7 mínútum í þennan leik er ákvörðun sem enginn skilur. Í marki HK var brotið á Helga markverði en ekkert dæmt. Vítaspyrnudómurinn var þó réttur ég gef honum það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.