Fotbolti.net
@BenniThordar Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Norðurálsvöllurinn
Flottar aðstæður. Sól, hlýtt og smá vindur
ÍA
ÍA
2 - 0
Selfoss
Selfoss
Arnór Snær Guðmundsson 38'1 - 0Arnór Snær Guðmundsson 45'2 - 0
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Myndir: Ingunn Hallgrímsdóttir

SKÝRSLAN: Skagamenn aftur á sigurbraut

Hvað réði úrslitum?

Tvö föst leikatriði þar sem boltinn bara hrökk fyrir Arnór Snæ og hann potaði boltanum inn. Skagamenn hafa ekki verið að skora mikið af svona mörkum í sumar en nú kom það.

Bestu leikmenn

1. Arnór Snær Guðmundsson(ÍA)

Það er ekki annað hægt en að velja hægri bakvörð sem skorar tvö mörk sem mann leiksins. Var pínu óöruggur varnarlega í upphafi leiks en óx ásmegin og var besti maður vallarins.

2. Stefán Logi Magnússon(Selfoss)

Vissulega fékk hann á sig tvö mörk í kvöld en ekkert sem hann gat gert við því. Þess fyrir utan greip hann fullt af fyrirgjöfum og var mjög solid.

Atvikið

Viktor Helgi miðjumaður fékk boltann í andlitið af stuttu færi og það brotnaði uppúr framtönn hjá honum en hann henti bara brotinu útaf og hélt áfram. Grjótharður gæi!

Hvað þýða úrslitin?

Skagmann tylla sér aftur á topp deildarinnar með 23 stig og stefna ótrauðir á Pepsideildina 2019. Selfyssingar hins vegar í miklu veseni í 10.sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Magnús Ingi Einarsson hjá Selfossi. Var eiginlega bara heppinn að fá ekki rautt í fyrri hálfleik og þurfti svo á endanum að fara útaf vegna meiðsla.

Dómarinn - 6

Var allt í lagi en ekkert meira en það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.