Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild karla
Alvogenvöllurinn
11 gráðu hiti og það sést í sól!
KR
KR
1 - 1
Valur
Valur
Kennie Knak Chopart 6'1 - 01 - 145' Patrick Pedersen
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

SKÝRSLAN: Valsmenn sáttari á koddann - Uppskera KR rýr

Hvað réði úrslitum?

KR-ingar voru betri lengst af fyrri hálfleiks en gera svo skelfileg mistök í uppbótartíma hálfleiksins. Ná ekki að nýta sér að vera manni fleiri stóran hluta seinni hálfleiksins. Kunnugleg saga hjá KR.

Bestu leikmenn

1. Kennie Chopart (KR)

Chopart var mjög líflegur í kvöld og skoraði mark KR með laglegu \'slútti\'.

2. Birkir Már Sævarsson (Valur)

Var eins og hættulegur vængmaður í leiknum.

Atvikið

Engin hætta virtist á ferðum áður en Valur jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Gjöf frá KR-ingum og atvik sem Beitir í markinu vill gleyma sem fyrst.

Hvað þýða úrslitin?

KR-ingar eru með sama stigafjölda og þeir voru með á sama tímapunkti í fyrra. Stigið gerir lítið fyrir þá. Liðið er langt frá toppnum. Miðað við þróun leiksins geta Valsmenn verið sáttir með niðurstöðuna.

Vondur dagur

Eiður lætur reka sig af velli, Watson og Beitir gera slæm mistök, áfram heldur Óskar Örn að vera langt frá sínu besta og Sigurður Egill var varla þátttakandi.

Dómarinn - 8,5

Mjög góð frammistaða hjá Pétri löggu í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.