SKÝRSLAN: KA kom sér upp úr fallsæti
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikur réð úrslitum. KA var miklu betri aðilinn og ná inn tveimur mörkum sem skilja liðin að í dag. Í seinni hálfleik falla KA menn til baka en Fjölnir náði ekki inn marki þrátt fyrir tilraunir til þess.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Sigurgeirsson
Ásgeir var frábær í leiknum, sýndi hvað hann er ótrúlega góður leikmaður. Hann var hlaupandi út um allan völl, vann flest einvígi, skapa bæði pláss og góðar stöður fyrir samherja sína. Varnarmenn Fjölnis áttu í miklum erfiðleikum með hraðan hjá honum og þurftu ítrekað að brjóta á honum til að stoppa hann. Markið sem hann skoraði varð einmitt til útaf hraða hans og dugnaði.
2. Bjarni Mark
Bjarni Mark er búinn að vera frábær fyrir KA í allt sumar og hélt uppi sama leik í dag. Góður á miðjunni og var öruggur í öllum sínum aðgerðum.
Atvikið
Seinna mark KA setur Fjölnir í erfiða stöðu. KA var betri aðilinn í þessum leik en Fjölnir voru líklegir á tímabili til að valda usla. Leikurinn hefði mögulega spilast öðruvísi ef þetta seinna mark hefði ekki komið.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta voru ótrúlega mikilvægir þrír punktar sem voru í boði í kvöld. Fyrir leik var Fjölnir í 8 sæti og KA í fallsæti. Með þessum sigri fór KA upp í 7 sætið með 12 stig, sama stigafjölda og Fjölnir en þeir féllu niður í 9 sæti. Pakkinn er samt mjög þéttur í neðri helming deildarinnar - 3 stig skilja að frá 11. sæti og upp í 6. sætið.
Vondur dagur
Bergsveinn Ólafsson var í veseni með Ásgeir í dag og á stóran hluta í marki númer 2 hjá KA. Hann gerði ráð fyrir því að það væri enginn bak við sig þegar boltinn var að rúlla til Þórðar í markinu en Ásgeir hins vegar hljóp framhjá honum og eftirleikurinn auðveldur.
Dómarinn - 8
Þóroddur Hjaltalín gerði vel í dag. Þetta var mikill baráttuleikur, aðeins um pústra en hann hélt góðri línu.



