SKÝRSLAN: Ekkert Evrópusæti á FH þrátt fyrir sigur
Hvað réði úrslitum?
Hræðileg varnarmistök í upphafi leiks réði einfaldlega úrslitum í dag. Leikurinn var kaflaskiptur og hefði þannig séð getað dottið báðum megin.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Kristjánsson
Var eins og klettur í vörn FH og hleypti nánast engu framhjá sér. Búinn að reynast þeim drjúgur á tímabilinu.
2. Ævar Ingi Jóhannesson
Akureyringurinn getur gjörsamlega hlaupið endalaust og var manna sprækastur hjá Stjörnunni í dag. Var settur niður í bakvörðinn í lokin og leysti það vel.
Atvikið
Markið sem að Brandur skoraði var algjört sprellimark og réði úrslitum þessa leiks. Halli hékk alltof lengi á boltanum og sendi svo glórulausa sendingu á Brynjar Gauta í stað þess að negla boltanum frá.
Hvað þýða úrslitin?
Stjörnumenn enda tímabilið í þriðja sæti á meðan að FH endar í því fimmta. Það þýðir að FH tekur ekki þátt í Evrópukeppni á næsta ári.
Vondur dagur
Haraldur Björnsson gaf mark í upphafi leiks og átti nokkur skrítin moment. Þá var Jóhann Laxdal alveg gjörsamlega heillum horfinn í dag.
Dómarinn - 6
Ívar Orri hefur oft verið betri. FH átti hugsanlega að fá víti í fyrri hálfleik og því er okkar maður aðeins dreginn niður hér. Annars engin major vandamál.



