Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi-deild karla
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
4 - 0
KA
KA
Thomas Mikkelsen (víti) 5'1 - 0Willum Þór Willumsson 28'2 - 0Willum Þór Willumsson 35'3 - 0Thomas Mikkelsen 67'4 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur

SKÝRSLAN: Blikar rúlla yfir KA í kveðjuleik Túfa

Hvað réði úrslitum?

Blikar settu tóninn strax í byrjun leiks með marki og voru bara miklu betri en KA og enda á að vinna leikinn 4-0.

Bestu leikmenn

1. Willum Þór Willumsson

Willum var frábær í dag, skorar tvö mörk og fór illa með KA menn oft á tíðum, kóronar frábært sumar.

2. Thomas Mikkelsen

Þessi gæji kann að skora mörk, skorar tvö í dag og maður spyr sig hvort Breiðablik hefðu tekið titilinn ef hann hefði komið fyrir tímabil.

Atvikið

Annað mark Blika. KA voru líflegir í tíu mínútur í þessum leik í stöðunni 1-0 en þegar Willum skoraði annað mark Blika var ekki aftur snúið.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik endar í öðru sæti deildarinnar þar sem Valur vann Keflavík og eru Íslandsmeistarar annað árið í röð.
KA menn enda í 7.sæti annað árið í röð eftir að ÍBV fór uppfyrir þá í 6.sætið.

Vondur dagur

Milan Joksimovic.
Milan fékk á sig víti strax eftir rúmar þrjár mínútur og réði ekkert við sóknarmenn Blika í dag. Lið KA í heild sinni var mjög slakt en Milan leið greinilega alls ekki vel í þessari miðvarðarstöðu en hann spilar venjulega vinstri bakvörð.

Dómarinn - 9

Siggi Þrastar með flottan leik, vítið hárrétt og man ekki í fljótu bragði eftir mörgum röngum dómum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.