Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi-deild karla
Víkingsvöllur
Bjart en kalt, 5 gráðu hiti og völlurinn blautur.
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 3
KR
KR
Rick Ten Voorde (víti) 21'1 - 01 - 124' Óskar Örn Hauksson1 - 252' Atli Sigurjónsson1 - 361' Halldór Smári Sigurðsson (sjm)Geoffrey Wynton Mandelano Castillion 70'2 - 3
Dómari: Þóroddur Hjaltalín

SKÝRSLAN: KR tók Evrópusætið í Víkinni

Hvað réði úrslitum?

Geggjaður leikkafli KR fyrstu 25 í seinni.

Eftir jafnan og þungan fyrri hálfleik kom ógnarsterkt KR lið út eftir hléið og hreinlega hleypti Víkingum vart fram fyrir miðju, skoraði tvö mörk og kláraði leikinn.

Bestu leikmenn

1. Óskar Örn Hauksson

Allt í öllu hjá KR sóknarlega. Skoraði gríðarlega mikilvægt jöfnunarmark í fyrri hálfleik og alger lykilmaður í pressunni í upphafi seinni.

Þvílík fyrirliðaframmistaða.

2. Andreas Larsen

Þvílík skotæfing hjá Larsen í þessum leik. Vissulega þyrfti hann að verða sterkari í teignum en hann átti margar magnaðar vörslur og hélt Víkingum á floti á erfiðum köflum í leiknum.

Atvikið

Hálfleikshléið.

KR áttu erfitt, fengu sér ávexti og náðu spjalli sem að skilaði sér í geggjuðum síðari hálfleik. Rúnar sagðist ekki hafa tekið hárþurrku á sína menn en það sem þeir gerðu í hálfleiknum svínvirkaði.

Hvað þýða úrslitin?

KR enda í fjórða sæti og leika í Evrópukeppni næsta sumar.

Víkingar enda í 8.sæti í PEPSI deildinni.

Vondur dagur

Erfitt að pikka einhvern út hér. Kaflaskiptur leikur þar sem að KR áttu slakan fyrri hálfleik en frábæran seinni.

Ætli við látum ekki hafa það þannig að KR hafi átt vondan dag í fyrri hálfleik og Víkingur í seinni.

Dómarinn - 10,0

Vá hvað er vont að missa Dodda.

Fullkomin frammistaða hjá tríóinu. Alger leikstjórn og allar stórar ákvarðanir réttar.

Frábær endir á mögnuðum dómaraferli!!!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.