SKÝRSLAN: Algjört hrun hjá Fjöni
Hvað réði úrslitum?
Hrunið hjá Fjölni eftir að fyrsta markið kom hjá Fylki. Þórður Ingason missti boltann tvisvar og gaf þannig tvö mörk. Framlínan hætti að nenna að hlaupa.
Bestu leikmenn
1. Albert Brynjar Ingason
þrenna hjá Alberti sem var fyrirliði í leiknum. Var alltaf á fullu
2. Hákon Inga Jónsson
Hákon var gífurlega vinnusamur í leiknum. Skoraði alvöru framherja mark þegar hann var á tánum þegar Torfi gerði mistök í vörninni.
Atvikið
Öll mörkin, hrunið, rauða spjaldið. Veit hreinlega ekki hvað ég á að velja. Rauða spjaldið setur dökkan blett á lélegt tímabil hjá Gumma Kalla og samkvæmt mínum heimildum á hann að hafa hrækt í áttina að Helga Mikael, dómara leiksins
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða bara það að Fylkir fór upp í 8 sætið. Hlutirnir breyttust ekki mikið fyrir Fjölni. Þeir fara beint niður
Vondur dagur
Allt Fjölnisliðið. Það þarf held ég ekkert að fara nánar út í það. Algjört hrun.
Þórður Inga gaf tvö mörk. Torfi var í bullinu og Gummi Kalli heimtaði að láta reka sig af velli.
Þórður Inga gaf tvö mörk. Torfi var í bullinu og Gummi Kalli heimtaði að láta reka sig af velli.
Dómarinn - 9
Helgi Mikael var fantagóður í leiknum. Trúi ekki öðru en að þetta rauða spjald hafi verið réttlætanlegt. Ákvað svo að spara Fjölni sársaukan og flauta bara af á 90 slétt.


