Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi-deild karla
Grindavíkurvöllur
flottur völlur hægur vindur og skúrir
Grindavík
Grindavík
2 - 5
ÍBV
ÍBV
Aron Jóhannsson 4'1 - 01 - 16' Gunnar Heiðar Þorvaldsson 1 - 210' Gunnar Heiðar Þorvaldsson Jose Enrique Seoane Vergara 49'2 - 22 - 359' Jonathan Ian Franks2 - 482' Kaj Leo í Bartalsstovu2 - 587' Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Dómari: Egill Arnar
Myndir: Getty Images

SKÝRSLAN: Markaregn á kveðjustund

Hvað réði úrslitum?

Grimmd, áræðni og gæði Eyjamanna gerði útslagið í dag. Kóngurinn eins og Kristján Guðmundsson fráfarandi Þjálfari ÍBV nefndi Gunnar Heiðar setti þrennu í leiknum og spiluðu Eyjamenn afskaplega skemmtilegan fótbolta lengst af sem skilaði 5 mörkum.

Bestu leikmenn

1. Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Þvíleik leið til að kveðja. Þrenna og var hreint út sagt frábær í dag, leikur uppá að minnsta kosti 9,5 hjá honum og í raun sorglegt að hann skuli vera að hætta.

2. Kaj Leo í Bartalsstovu

Svo skemmtilegur með boltann, skapar mikla hættu og hefur frábæra sendingargetu. skoraði gott mark og spilaði vel.

Atvikið

Þriðja mark Gunnars Heiðars og hvað sú stund færði honum. Gleði Eyjapeyja var ósvikinn og gaman fyrir Gunnar að kveðja félagið með slíkum hætti.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV endar deildina í 6.sæti sem verður bara að teljast góður árangur fyrir liðið en Grindavík sem framan af móti var talið ætla að blanda sér í Evrópubaráttu endar í 10.sæti sem teljast vart annað en vonbrigði.

Vondur dagur

Óli Stefán vildi eflaust fá meira út úr sínum mönnum á kveðjustund en viðurkenndi það eftir leik að eflaust hefði tilkynning um starfslok hans haft neikvæð áhrif á liðið og hann bæri ábyrgð á því.

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá Agli Arnari. Var nokkuð öruggur á flautunni leyfði leiknum að fljóta og var ekki að flauta neinn óþarfa.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.