Leik lokið!
87. mín
Þrenna hjá gamla manninum sem er að hætta í dag.
MAAAARK!
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Eyjamenn vinna boltann hátt á vellinum Gunnar Heiðar aleinn í teignum réttstæður fær boltann og leggur boltann einfalt í hornið.Þrenna hjá gamla manninum sem er að hætta í dag.
87. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtVíðir Þorvarðarson
86. mín
Brynjar Ásgeir týnir boltanum og snýst bara í hringi á miðjum vellinum. Eyjamenn hirða hann og Grindavík brýtur.
82. mín
MAAAARK!
Kaj Leo í Bartalsstovu (stoðsending: Eyþór Orri Ómarsson )
Nýkominn inná hann Eyþór þegar hann sleppur afturfyrir hægra meginn á vellinum. Leikur inn í teiginn og leggur hann á Kaj sem getur ekki annað en skorað af mjög stuttu færi,81. mín
InnEyþór Orri Ómarsson
ÚtJonathan Ian Franks
Eyþór hinn ungi mætir inná.
79. mín
Gunnar Heiðar spólar sig í gegnum vörn Grindavíkur en heimamann bjarga á síðustu stundu í horn. Nær hann þrennu í kveðjuleiknum?
78. mín
Sito enn og aftur í færi. Fær boltann við teiginn og lætur vaða en rétt yfir fer boltinn.
73. mín
Will Daniels of heiðarlegur þarna. Sleppur í gegn og nær boltanum á undan Halldóri í teignum og fær Halldór í sig en stendur í fæturnar og færið rennur út í sandinn.
Hefði alveg getað farið niður þarna og fengið víti en hrósum honum fyrir að sleppa þvi.
Hefði alveg getað farið niður þarna og fengið víti en hrósum honum fyrir að sleppa þvi.
71. mín
Og nú Tamburini í fínni stöðu í teignum en fyrirgjöfin mjög slök og Eyjamenn hreinsa og bruna upp völlinn.
70. mín
Alexander reynir utanfótar sendingu inn í teiginn af vinstri vængnum með Will og Sito bíðandi í teignum en beint í hrammanna á Halldóri.
68. mín
Alexander strax kominn í action en Eyjamenn hreinsa.
67. mín
InnAlexander Veigar Þórarinsson
ÚtBrynjar Ásgeir Guðmundsson
Hafsent út fyrir sóknarþenkjandi leikmann.
66. mín
Will Daniels að skapa hættu í teignum á fyrirgjöf frá vinstri sem rétt siglir fram hjá mönnum í teignum. Líf og fjör.
62. mín
Kaj Leo í frábæru færi fyrir ÍBV en Majevski ver frábærlega í horn.
60. mín
InnMarinó Axel Helgason
ÚtNemanja Latinovic
59. mín
MAAAARK!
Jonathan Ian Franks (stoðsending: Róbert Aron Eysteinsson )
Flott sending inn á teiginn frá Róberti og geggjuð móttaka hjá Franks sem klárar virkilega vel undir Majevski.57. mín
Frábært samspil hjá Will Daniels og Sito í snöggri sókn endar með skoti frá Sito úr góðu færi sem Halldór Páll ver glæsilega.
55. mín
Gult spjald
René Joensen
54. mín
Enn Sito í færi en framhjá.
52. mín
Sito aftur að ógna leikur inn völlinn frá hægri og á skotið en yfir fer boltinn.
49. mín
Sito fær boltann óvænt í teignum og boltinn steinliggur í netinu,
Spá Elvars Geirs upp á 5-5 lifiir.
MAAAARK!
Jose Enrique Seoane Vergara
Uppúr nákvæmlega engu.Sito fær boltann óvænt í teignum og boltinn steinliggur í netinu,
Spá Elvars Geirs upp á 5-5 lifiir.
45. mín
Komið af stað á ný. 45 mínútur eftir að Pepsideildinni 2018
45. mín
InnRóbert Aron Eysteinsson
ÚtAlfreð Már Hjaltalín
Eyjamenn gera eina breytingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Flautað hér til hálfleiks. Eftir fjörugar upphafsmínútur hefur botnin aðeins dottið úr þessu en 45 mínútur eftir og allt getur gerst.
44. mín
Gunnar Heiðar hárbreidd frá því að ná til boltans í markteignum eftir aukaspyrnu utan af velli en boltinn siglir aftur fyrir.
40. mín
InnJose Enrique Seoane Vergara
ÚtSam Hewson
Hewson hefur lokið leik inn kemur Sito.
40. mín
Jonathan Franks setur Björn Berg á rassgatið hægra meginn í teignum og á skotið sem Majevski kýlir beint upp í loft. Eyjamenn hrúgast að boltanum og koma honum í netið en dæmdir brotlegir.
38. mín
Kaj Leo með skærinn hægra meginn í teignum og reynir skotið en Majewski ver vel.
35. mín
Majevski í vandræðum eftir lúmskt skot frá Víði. Völlurinn er virkilega blautur og boltinn spýtist eftir grasinu en Majevski slær frá og Grindavík hreinsar.
Eyjamenn talsvert öflugri þessa stundina.
Eyjamenn talsvert öflugri þessa stundina.
34. mín
Gunnar Heiðar með skot rétt fyrir utan teig en það er laust og siglir framhjá
32. mín
Gunnar Heiðar með lúmska fyrirgjöf sem Majewski kýlir frá. Eyjamenn fá horn. Atli Arnars náði skallanum eftir hornið en nær ekki að stýra honum á markið.
29. mín
Sam Hewson með máttlítið skot af vítateignum eftir snarpa sókn.
24. mín
hraðinn í leiknum dottið töluvert niður síðustu mínútur og menn lagt ögn meiri áherslu á varnarleik en í upphafi.
Á Origo er staðan orðinn 3-0 fyrir Val
Á Origo er staðan orðinn 3-0 fyrir Val
23. mín
Celebvaktin. Bjarni Jó þjálfari Vestra er mættur í stúkuna.
22. mín
Halldór Páll missir af boltanum eftir hornið en gulir ná ekki að gera sér mat úr því.
21. mín
Grindavík fær horn. Hér er komin úrhellisrigning.
20. mín
René sloppinn einn í gegn en reynir að leika á Halldór Pál sem hirðir bara af honum boltann. Virkilega illa farið með frábæra stöðu.
18. mín
Grindavík í færi eftir góðan undirbúning Will og Arons en skot frá Gunnari Þ af vítateigslínunni fer himinhátt yfir.
17. mín
Fyrir áhugasama er staðan í leik Vals og Keflavíkur orðin 2-0 fyrir Valsmenn en Einar Karl Ingvarsson og Haukur Páll skoruðu á Origo og er því útlit fyrir að titilinn verði áfram að Hlíðarenda.
15. mín
Grindavík í tómu basli í öftustu línu. Gefa Víði boltann á stórhættulegum stað sem leikur inn í teiginn og á sendingu þvert í gegnum markteiginn en Gunnar Heiðar og co ná ekki að reka tærnar í boltann.
11. mín
Vægast sagt fjörugt hér í upphafi og nokkuð ljóst að markahrókurinn Gunnar Heiðar ætlar að kveðja með hvelli.
10. mín
Tvö mörk í kveðjuleiknum.
MAAAARK!
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Gunnar Heiðar skorar aftur. Algjör gjöf fyrir hafn góðan senter og Gunnar er, Slök baksending frá Gunnari Þorsteins og Gunnar Heiðar eins og gammur hirðir boltann og setur hann örugglega í netið.Tvö mörk í kveðjuleiknum.
6. mín
Fyrirgjöf frá hægri og stormsenterinn Gunnar Heiðar mætir og setur boltann í netið af stuttu færi,
MAAAARK!
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Eyjamenn jafna strax!Fyrirgjöf frá hægri og stormsenterinn Gunnar Heiðar mætir og setur boltann í netið af stuttu færi,
4. mín
Aron Jó fær boltann frá Will Daniels góðum 20-25 metrum frá marki gegnt vítapunkti og hamrar boltann beinustu leið í vinkilinn.
MAAAARK!
Aron Jóhannsson
Þvílik SLEGGJA!!!!Aron Jó fær boltann frá Will Daniels góðum 20-25 metrum frá marki gegnt vítapunkti og hamrar boltann beinustu leið í vinkilinn.
1. mín
Halldór Páll missir boltann eftir stungusendingu en nær honum strax aftur.. Aron Jó ver í sníkjunni.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Grindavík hefur leik og sækir í átt til hafs með vindi.
Fyrir leik
Liðin eru mætt til vallar. Verður seint sagt að stúkan sé þétt setin en við vonumst engu að síður eftir skemmtilegum leik.
Fyrir leik
Það eru fleiri en bara þjálfarar og leikmenn sem eru að hætta að leik loknum hér í Grindavík en hin stórskemmtilegi Beggi vallarstjóri sem ætti að vera vallargestum hér í Grindavík vel kunnur lætur af störfum eftir tímabilið.
Fyrir leik
Liðin orðin klár og talsvert um breytingar hjá heimamönnum.
Mesta athygli vekur það líklega að Jajalo er sestur á bekkinn og hinn Pólski Majevski mættur í rammann.
Hann átti stórleik á Samsung vellinum fyrr á tímabilinu og spurning hvað hann gerir í dag.
Mesta athygli vekur það líklega að Jajalo er sestur á bekkinn og hinn Pólski Majevski mættur í rammann.
Hann átti stórleik á Samsung vellinum fyrr á tímabilinu og spurning hvað hann gerir í dag.
Fyrir leik
Veðurútlit á leiktíma er bara nokkuð gott þótt búast megi við því að það verði nú ögn kalt en ég hvet fólk eindregið til þess að mæta á völlinn og styðja sína menn.
Kveðjuleikur beggja þjálfara og síðasti séns að sjá Pepsi leik fram til næsta vors.
Kveðjuleikur beggja þjálfara og síðasti séns að sjá Pepsi leik fram til næsta vors.
Fyrir leik
Minna hefur komið fram um málefni Kristjáns Guðmundssonar en þó hefur heyrst að Stjarnan vilji fá hann til þess að taka við kvennaliði félagsins en Ólafur Þór Guðbjörnsson hætti þar að loknu tímabilinu.
Fyrir leik
Eins og áður segir og ætti að vera alkunna er þetta kveðjuleikur Óla Stefáns með Grindavík. Mikið hefur verið rætt að undanförnu um framtíð hans og hvar hann muni þjálfa á næsta tímabili.
Nú í vikunni staðfesti Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA að Óli Stefán sé efstur á blaði hjá norðanmönnum
Nú í vikunni staðfesti Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA að Óli Stefán sé efstur á blaði hjá norðanmönnum
Fyrir leik
Fyrri lelk liðanna í sumar lauk með öruggum 3-0 sigri ÍBV þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem leikur væntanlega í dag sinn síðasta leik á ferlinum og Shahab Zahedi Tabar (2) sáu um markaskorun.
Annars hafa liðin mæst alls 38 sinnum í mótum á vegum KSÍ frá aldamótum og hafa Grindvíkingar unnið 14 leiki, 9 leikjum hefur lyktað með jafntefli og Vestmannaeyingar hafa unnið 14.
Markatalan er svo 59 mörk ÍBV gegn 50 Grindavíkur.
Annars hafa liðin mæst alls 38 sinnum í mótum á vegum KSÍ frá aldamótum og hafa Grindvíkingar unnið 14 leiki, 9 leikjum hefur lyktað með jafntefli og Vestmannaeyingar hafa unnið 14.
Markatalan er svo 59 mörk ÍBV gegn 50 Grindavíkur.
Fyrir leik
Liklega hefur það ekki farið framhjá nokkrum manni að hin geðþekki Óli Stefán Flóventsson lætur af störfum hjá Grindavík að tímabilinu loknu og er þetta því kveðjuleikur hans.
Í vikunni bárust svo þær fréttir að Kristján Guðmundsson hætti sömuleiðis hjá ÍBV og kveður hann því líka í dag.
Hef því fulla trú á því að við fáum skemmtilegan og spennandi leik hér í dag.
Í vikunni bárust svo þær fréttir að Kristján Guðmundsson hætti sömuleiðis hjá ÍBV og kveður hann því líka í dag.
Hef því fulla trú á því að við fáum skemmtilegan og spennandi leik hér í dag.
Fyrir leik
Góðan dag kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavíkur og ÍBV í lokaumferð Pepsideildarinnar.
Liðin sem mætast hér í dag hafa fátt annað að spila uppá en stolt og mögulega ögn betri stöðu í deildinni en ég á engu að síður von á að bæði lið komi af fullum krafti inní þennan leik.
Liðin sem mætast hér í dag hafa fátt annað að spila uppá en stolt og mögulega ögn betri stöðu í deildinni en ég á engu að síður von á að bæði lið komi af fullum krafti inní þennan leik.



Kveðjuleikur Óla og Kristjáns en stjarna dagsins er án efa Markamaskínan Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem leggur skóna á hilluna og kveður með þrennu!