Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi Max-deild karla
Kaplakrikavöllur
Sól, iðagrænn völlur og létt gola
FH
FH
3 - 2
KA
KA
Halldór Orri Björnsson 6'1 - 01 - 153' Hallgrímur Mar Steingrímsson1 - 265' Elfar Árni Aðalsteinsson Björn Daníel Sverrisson (víti) 75'2 - 2Halldór Orri Björnsson 87'3 - 2
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Allt vitlaust eftir 3-2 sigur FH á KA í dramatískum leik

Hvað réði úrslitum?

Erfitt að segja til um það í þessum leik. KA virtist vera með leikinn í höndum sér áður en Torfi fær á sig vítið og þá kviknaði á FH-ingum sem kláruðu leikinn eftir það.

Bestu leikmenn

1. Halldór Orri Björnsson

Halldór Orri skorar tvö mörk í þessum leik og var mjög ógnandi oft á tíðum, klárar færin sín vel og vinnur leikinn fyrir FH.

2. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Það gerist allt í gegnum Grímsa hjá KA, Pétur Viðars réði ekkert við hann í dag. Skoraði glæsilegt aukaspyrnumark og fíflaði menn upp úr skónum og lagði upp annað markið á Ella.

Atvikið

Atvikið í lokin. Guðmann Þórisson lenti á eftir Sæþóri og togaði hann niður þegar boltinn var á leið inn í teig, leit út fyrir að vera augljóst víti en Einar dæmdi ekkert. KA menn voru brjálaðir og fengu Óli Stefán og Jajalo báðir spjald.

Hvað þýða úrslitin?

FH er komið á topp deildarinnar í bili með 7 stig en KA er með 3 stig eftir þessar fyrstu 3 umferðir.

Vondur dagur

Andri Fannar Stefánsson og Torfi Tímoteus Gunnarsson hafa átt betri daga. Andri var gjörsamlega úti á þekju í fyrri hálfleik og missti menn framhjá sér trekk í trekk auk þess sem sóknarleikur hans var slakur. Torfi var óöruggur í leiknum og gefur vítaspyrnu þegar hann handleikur boltann innan teigs.

Dómarinn - 3

Einar Ingi var með marga vafasama dóma í dag, hafði gjörsamlega engin tök á leiknum í seinni hálfleik. Hefði átt að dæma víti á Hauk Heiðar þegar hann dæmdi aukaspyrnu. Torfi hefði átt að fá rautt fyrir að verja boltann viljandi og sleppti hann svo augljósu víti í lokin þegar Guðmann togaði Sæþór niður.
Slök frammistaða hjá Einari.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.