SKÝRSLAN: Ingólfur sá rautt og Afturelding gekk á lagið
Hvað réði úrslitum?
Rauða spjaldið. Leiknismenn fengu samt sem áður fín færi en rauða spjaldið reyndist þeim og þeirra sóknarleik erfitt.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Örn Arnþórsson
Flottur leikur hjá Ásgeiri sem toppaði sína frammistöðu með glæsilegu marki. Vel gert!
2. Djordje Panic
Margir aðrir sem koma til greina hér en ég ætla að gefa Panic þetta! Hann var ansi lipur á köflum og náði oft að skapa hættu í teig Leiknismanna með skemmtilegum hreyfingum .
Atvikið
Rauða spjaldið. Það breytti leiknum og gaf Aftureldingu aukinn kraft. Því miður fyrir Leiknismenn.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding nær í þrjá góða punkta á heimavelli og stimpla sig vel inn. Leiknismenn eflaust svekktir að ná ekki að byggja ofan á góðan sigur í fyrsta leik.
Vondur dagur
Ingólfur Sigurðsson fær þetta skuldlaust. Ingólfur vildi sjálfur meina að hann hefði ekki gerst brotlegur en Ívar dæmdi engu að síður. Þetta var erfitt fyrir Leikni eftir rauða spjaldið.
Dómarinn - Ívar Orri
7



