SKÝRSLAN: Pétur tryggði Gróttu stig
Hvað réði úrslitum?
Drifkrafturinn í Gróttumönnum er það sem færði þeim jafntefli í þessum leik. Þeir voru einum færri í 45 mínútur og sást það varla á spilamennsku þeirra. Þróttarar voru ekki nægilega ákveðnir í að klára leikinn einum fleiri sem gerði það að verkum að Gróttumenn náðu að kreysta fram eitt mark undir lok leiksins.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Leó Björnsson
Það var erfitt að segja til um mann leiksins. Það var enginn sem stóð þannig séð upp úr. Ágúst hinsvegar setti tvö mörk í kvöld og fær þann heiður á að vera fyrir valinu. Fyrra markið hans kom úr víti sem Aron Þórður fiskaði. Í seinna markinu fékk hann góða sendingu frá Jasper á kantinum sem hann afgreiddi snyrtilega framhjá Hákoni í markinu.
2. Axel Sigurðarson
Hann var rosalega vinnusamur á kantinum í dag og óhræddur á að taka menn á. Hann kom með margar góðar fyrirgjafir sem Gróttumenn hefðu getað nýtt sér miklu betur. Hraðinn í honum er svakalegur og á hann eftir að nýtast Gróttu vel í sumar.
Atvikið
Seinna mark Gróttu sem kom í uppbótartíma.
Á eitthvern ótrúlegan hátt náði Pétur að setja boltan í markið.
Mikið klafs var í vítateig Þróttar þegar Grótta átti hornspyrnu. Pétur snýr þá baki í markið og er í litlu jafnvægi þegar hann sparka í boltan sem mér sýndist fara í stöngina, aftur í hann og inn. Allt trylltist í stúkunni enda baráttu mark sem skilaði Gróttu sínu fyrsta stigi í Inkasso í ár.
Á eitthvern ótrúlegan hátt náði Pétur að setja boltan í markið.
Mikið klafs var í vítateig Þróttar þegar Grótta átti hornspyrnu. Pétur snýr þá baki í markið og er í litlu jafnvægi þegar hann sparka í boltan sem mér sýndist fara í stöngina, aftur í hann og inn. Allt trylltist í stúkunni enda baráttu mark sem skilaði Gróttu sínu fyrsta stigi í Inkasso í ár.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að liðin náðu bæði í sín fyrstu stig í kvöld. Þróttur er í 7.sæti og Grótta situr í 11.sæti.
Vondur dagur
Það var enginn í raun og veru sem átti vondan dag. Dagur Guðjóns fékk hinsvegar tvö gul spjöld og var sendur upp í stúku undir lok fyrri hálfleiks. Hann verður því í banni í næsta leik. Það er kanski verst fyrir hann sjálfan þar sem hann er gríðalega mikilvægur leikmaður fyrir Gróttu og þeir eiga erfiðan leik fyrir höndum á móti Þór næstu helgi.
Dómarinn - 6
Hann var ágætur í dag. Þurfti að hafa mikið fyrir því að hafa stjórn á leiknum þar sem það var mikið um brot og spjöld.


