SKÝRSLAN: Negla Hilmars yljaði í brunagaddi í Garðabæ
Hvað réði úrslitum?
Einstaklingssnilld Hilmars Árna Halldórssonar, hann hafði hægt um sig í leiknum en þegar að Alex lagði boltann á hann u.þ.b. 30 metra frá merki henti Hilmar í óverjandi neglu sem öllu máli skipti.
Bestu leikmenn
1. Alex Þór Hauksson
Miðjan hjá Stjörnunni átti góðan dag, vann alla stöðubaráttu og flutti boltann vel upp völlinn. Alex átti stoðsendinguna í sigurmarki Stjörnunnar og var gríðarlega duglegur bæði í vörn og sókn.
Honum var skipt útaf á 66.mínútu og við það náði HK smá fótfestu á miðjunni.
Honum var skipt útaf á 66.mínútu og við það náði HK smá fótfestu á miðjunni.
2. Heiðar Ægisson
Bakverðir Stjörnunnar skiptu miklu máli í uppspilinu og það leiddi til þess að kantmenn gestanna voru mest að sinna varnarhlutverki í leiknum. Heiðar stóð Þórarni aðeins framar.
Atvikið
Leikurinn var frekar bragðlítill en markið stendur algerlega uppúr.
Það þarf sjálfstraust til að negla svona mark af öllu þessu færi...ljóst að Hilmar hefur það!
Það þarf sjálfstraust til að negla svona mark af öllu þessu færi...ljóst að Hilmar hefur það!
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan nær í sinn fyrsta sigur í deildinni og er nú með 5 stig.
Nýliðar HK eru enn án sigurs og sitja með 1 stig við botninn.
Nýliðar HK eru enn án sigurs og sitja með 1 stig við botninn.
Vondur dagur
Sóknarleikur HK var mjög bitlaus. Það er auðvitað pínu ósanngjarnt að níðast of mikið á þeim því það að missa Bjarna og Arnþór útaf riðlaði sóknarupplegginu klárlega.
HK þarf að fá meira út úr sóknarleiknum sínum, varnarlega var margt að ganga vel.
HK þarf að fá meira út úr sóknarleiknum sínum, varnarlega var margt að ganga vel.
Dómarinn - 8,0
Góð frammistaða tríósins, leikurinn var hins vegar afar auðdæmdur og beinlínis ekkert vafaatvik eða eitthvað í raun þeirrar stærðargráðu sem var krefjandi fyrir þá félaga.
Allt öruggt í þeim málunum í kvöld.
Allt öruggt í þeim málunum í kvöld.



