SKÝRSLAN: Framarar nýttu sín tækifæri gegn Fjölni
Hvað réði úrslitum?
Framarar nýttu sína sénsa á meðan Fjölnir gerði það ekki. Þetta var ekki leikur hinna mörgu marktækifæra svo að færanýtingin skipti öllu máli hér í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Unnar Steinn Ingvarsson
Unnar og Jökull voru flottir saman á miðjunni fyrir aftan Tiago. Unnar skoraði og lagði upp í dag og steig sjaldan feilspor.
2. Hlynur Atli Magnússon
Hlynur var góður í dag. Varðist vel komust Fjölnismenn ekki oft fram hjá honum. Skoraði einnig annað mark Framara í leiknum.
Atvikið
Bæði fyrsta markið og markið sem réði úrslitum leiksins eru í raun atvik leiksins. Leikurinn var í miklu jafnvægi þegar Hans Viktor skoraði fyrsta markið og nauðsynlegt fyrir leikinn að það kom.
Unnar Steinn gerði svo mjög vel í lokamarkinu og náði að koma boltanum í gegn á Helga í þann mund sem var verið að brjóta á Unnari. Helgi gerði svo vel að klára fram hjá Atla Gunnari.
Unnar Steinn gerði svo mjög vel í lokamarkinu og náði að koma boltanum í gegn á Helga í þann mund sem var verið að brjóta á Unnari. Helgi gerði svo vel að klára fram hjá Atla Gunnari.
Hvað þýða úrslitin?
Fram vinnur sinn fyrsta leik á leiktíðinni og er komið á blað. Fjölnir sem spáð var toppsætinu tapar en hefði með smá heppni getað unnið í kvöld. Liðin eru bæði með þrjú stig eftir tvær umferðir.
Vondur dagur
Erfitt að segja hver átti vondan dag í dag. Mistökin voru ekki mörg í leiknum.
Ég ætla samt að gerast djarfur og segja að Atli Gunnar hafi átt vondan dag í markinu hjá Fjölni. Fannst smá eins og hann hefði getað gert betur í öðru markinu þó að Hlynur Atli hafi vissulega verið gapandi frír. Atli missti svo af fyrirgjöf sem leit klaufalega út.
Alls ekki hræðilegur leikur hjá Atla en ef ég á að velja einn þá verður hann fyrir valinu.

Dómarinn - Sjö
Pétur var fínn í leiknum og lét smá tuð frá leikmönnum Fjölnis hafa lítil áhrif á sig.