Fotbolti.net
@OrriRafnOrri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
Valur
Valur
Pepsi-Max deild kvenna
Origo völlurinn
Smá vindur, nokkuð hlýtt og léttskýjað
6 - 0
Fylkir
Fylkir
Hlín Eiríksdóttir 18'1 - 0Margrét Lára Viðarsdóttir 34'2 - 0Elín Metta Jensen 43'3 - 0Elín Metta Jensen 53'4 - 0Elín Metta Jensen 74'5 - 0Elín Metta Jensen 80'6 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

SKÝRSLAN: Elín Metta skellti í sýningu á Hlíðarenda

Hvað réði úrslitum?

Fylkir byrjaði vel og fengu dauðafæri á 15.mínútu sem hefði getað breytt leiknum! Valur skorar hinsvegar bara þremur mínútum síðar og eftir það var aldrei vafi hvort liðið færi með sigur af hólmi. Það kom ákveðið vonleysi í gestina og Valur hreinlega keyrði yfir þær með Elín Mettu fremsta í flokki.

Bestu leikmenn

1. Elín Metta Jensen (Valur)

Var gjörsamlega á eldi í kvöld eins og í allt sumar! Hún virðist óstöðvandi. FJögur mörk og tvær stoðsendingar, verður það mikið betra en það? Ég held ekki!

2. Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur)

Mark og assist ásamt því að vera frábær í þessum leik! Geggjað fyrir Val að fá hana svona sterka inn í Íslandsmótið! Þær voru þó nokkrar sem gerðu tilkall í þetta sæti! En Margrét fær það að lokum.

Atvikið

Fyrsta mark Vals í þessum leik drap neistan í Fylki. Þær voru nýbúnar að fá dauðafæri sem þær hefðu átt að skora úr en fá svo mark í andlitið.

Hvað þýða úrslitin?

Valur er á toppnum í deildinni á markatölu og Elín Metta orðin markahæst í deildinni einnig. Fylkir falla hinsvegar niður í 8.sæti á markatölu.

Vondur dagur

Ég ætla bara skrifa þetta á allt lið Fylkis. Að tapa 6-0 í efstu deild er ekki nógu gott. Virtist öll von fara úr þeim eftir fyrsta mark Vals og eftir það áttu þær eiginlega bara ekki séns í sterkt lið vals. Þær fengu of mikið af auðveldum stungum innfyrir á sig og sóknarleikurinn var bara ekki boðlegur þar sem þær sköpuðu sér nánast ekkert.

Dómarinn - 8

Gunnar var virkilega flottur í dag, ekki eitt feilspor.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.