SKÝRSLAN: Útsýnisferð á Blásvöllum
Hvað réði úrslitum?
Ég ætla ekki að segja að rauða spjaldið hafi ráðið úrslitum en Þórsarar skora 2 mörk á 13 mínútna kafla eftir að rauða spjaldið var gefið. Það var stærsta atvik leiksins, klárlega.
Bestu leikmenn
1. Alvaro Montejo (Þór)
Alvaro með 2 mörk í dag, flottur í spilinu og almennt ógnandi. Fékk heiðursskiptingu á 77. mínútu.
2. Sveinn Elías Jónsson (Þór)
Án þess að vera 100% viss þá held ég að Sveinn hafi verið með tvær stoðsendingar í leiknum og þá kom mikið upp hægri kant Þórsara hvar hann lék.
Atvikið
Rauða spjaldið sem Hafþór Þrastarson fær þegar hann straujar Alvaro sem er við það að sleppa í gegn. Kláraði leikinn algjörlega fyrir Haukana sem voru ekki búnir að vera góðir fram að því.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar anda ofan í hálsmálið á Fjölnismönnum sem eru efstir í Inkasso-deildinni og einu stigi fyrir ofan Þór. Haukar áfram í fallbaráttu og framtíðin óljós í þjálfaramálum.
Vondur dagur
Hafþór Þrastarson fær þetta. Galin tækling í seinna gula spjaldinu og eitthvað sem maður sem er með gult spjald á bakinu á ekki að gera. Kláraði þetta fyrir sína menn sem sáu aldrei til sólar manni færri.
Dómarinn - 9
Málarameistarinn með allt á kristaltæru í dag. Öll spjöld rétt og leyfði leiknum að fljóta.



