Fotbolti.net
@ingimar90Ingimar Bjarni Sverrisson
Ingimar Bjarni Sverrisson
HK/Víkingur
HK/​Víkingur
Pepsi-Max deild kvenna
Kórinn
Þetta er inni...
1 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 123' Cloé LacasseGuðrún Gyða Haralz 25'1 - 11 - 233' Kristín Erna Sigurlásdóttir 1 - 369' Cloé Lacasse
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Víti, rautt og þrjú Eyjamörk.

Hvað réði úrslitum?

Það var barist hart um allan völl í Kórnum, en ÍBV voru með aðeins meiri gæði fram á við, sköpuðu fleiri færi og skoruðu úr þeim.

Bestu leikmenn

1. Cloé Lacasse

Var eins og svindlkall í kvöld, skoraði tvö og náði manni út í skyndisókn.

2. Þórhildur Þórhallsdóttir

Nánast allt gott sem heimaliðið í gegn fór í gegnum Þórhildi, vann boltann margoft og skapaði hættu fram á við.

Atvikið

Annað mark ÍBV kemur eftir ótrúlega klaufalega mistök í heimavörninni. Þetta mark leyfði ÍBV að pakka í vörn í seinni hálfleik og halda boltanum, sem hentar liðinu fínt.

Hvað þýða úrslitin?

Eyjakonur fara brosandi inn í landsleikjahléið í fimmta sæti. HK/Víkingar þurfa að finna næsta gír, hlýtur að fara í þær hversu mörgum jöfnum leikjum þær eru búnar að tapa.

Vondur dagur

Þegar Eygló Þorsteinsdóttir braut á Cloé og fékk rauða spjaldið í seinni hálfleik var eins og hún hefði bara fengið nóg. Brotið kom vissulega í veg fyrir hættulegt færi en það voru fleiri leikmenn gestanna komnir til baka sem hefðu getað stoppað sóknina.

Dómarinn - 5

Þokkalega dæmt en hefði klárlega getað róað leikmenn betur þegar hitinn var að aukast og einn og einn dómur var furðulegur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.