SKÝRSLAN: Vonbrigði á Vivaldivellinum
Hvað réði úrslitum?
Færanýting liðanna var engin, það var ekki mark skorað í dag þrátt fyrir nokkur færi.
Bestu leikmenn
1. Atli Gunnar Guðmundsson (Fjölnir)
Atli varði frábærlega fyrir Fjölnismenn á mikilvægum momentum.
2. Axel Sigurðarson (Grótta)
Axel var sprækastur í liði Gróttu og átti margar góðar rispur upp völlinn og bjó til helstu sénsa Gróttumanna.
Atvikið
Markvarsla Atla Gunnars eftir skalla af markteig bjargaði stiginu fyrir Fjölnismenn!
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn sitja á toppi deildarinnar með 13 stig, Grótta er í 7. sæti með 8 stig.
Vondur dagur
Framherjarnir Albert Brynjar og Pétur Theodór voru ekki að spila sína bestu leiki, kom lítið uppúr því sem þeir gerðu í dag.
Dómarinn - 6
Sigurður Hjörtur var með skrítna línu í leiknum og missti tökin á honum. Ekkert stórvægilegt samt.



